Eignin er seld og því fellur fyrirhugað auglýst opið hús niður.Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega, bjarta, mjög vel skipulagða og mikið endurnýjaða 102,5 fermetra 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á jarðhæð í góðu þríbýlishúsi á frábærum og mjög eftirsóttum stað... Sýna meira
Eignin er seld og því fellur fyrirhugað auglýst opið hús niður.Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega, bjarta, mjög vel skipulagða og mikið endurnýjaða 102,5 fermetra 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á jarðhæð í góðu þríbýlishúsi á frábærum og mjög eftirsóttum stað við Kvisthaga í Reykjavík.Eignin hefur verið talsvert endurnýjuð hið innra. Árið 2019 var skipt um eldhúsinnréttingar og tæki, dregið nýtt rafmagn í eldhús og hluta af öðrum rýmum íbúðarinnar auk þess sem rafmagnstafla fyrir íbúðina var endurnýjuð. Blöndunartæki í baðherbergi og sturtugler var endurnýjað 2019. Ný hitagrind með nýjum þrýstijafnara er í sameiginlegum kyndiklefa og rafmagnstafla fyrir húsið er ný.Lýsing eignar:Forstofa, flísalögð og með fatahengi.Barnaherbergi, innaf forstofu er stórt og parketlagt.Hol, parketlagt, bjart og rúmgott.Gestasnyrting, innaf holi er flísalögð og með loftræstingu.Eldhús, flísalagt og bjart með mjög rúmgóðri borðaðstöðu. Mjög fallegar nýlegar ljósgráar eldhúsinnréttingar með nýlegum tækjum. Tengi fyrir uppþvottavél í innréttingu, spanhelluborð og veggháfur.Stofa, stór, björt og parketlögð með fallegum útbyggðum glugga til suðurs.Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og flísalagður sturtuklefi með glerhurðum og nýlegum blöndunartækjum. Veggskápar og speglaskápar með lýsingu.Hjónaherbergi, parketlagt og stórt með fataskápum.Sér geymsla er undir útitröppum við inngang í íbúðina.Úr forstofu íbúðarinnar er innangengt í sameign hússins en þar er:Sameiginlegt þvottaherbergi með gluggum, lakkað gólf, vinnuborð með vaski og þvottasnúrur. Sameiginlegur kyndiklefi með glugga sem nýttur er sem hjólageymsla. Húsið að utan lítur vel út og lóðin sem er 767,0 fermetrar að stærð og er í óskiptri sameign alla íbúða í húsinu er virkilega vel ræktuð með stórri tyrfðri flöt og fallegum trjágróðri. Búið er að leggja fyrir hleðslustöð fyrir rafbíl fyrir þessa íbúð á vegg við innkeyrslu á lóð. Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á afar eftirsóttum stað við Kvisthaga þaðan sem stutt er í leikskóla, barnaskóla, Háskóla Íslands, Sundlaug Vesturbæjar, Melabúðina, íþróttasvæði KR, Kaffi Vest o.fl.Helstu framkvæmdir á síðustu árum:2019 – Ný eldhúsinnrétting og tæki, nýtt rafmagn og tafla í eldhús og gang, bætt við innstungum og tenglum og skipt um flesta rofa og dimmera. Nýir baðskápar, sturtugler og blöndunartæki í sturtu. Ný sólargluggatjöld í stofu og eldhús og nýjar myrkvunargardínur í svefnherbergi. Öll íbúðin máluð og hurðar lakkaðar.2021 – Nýr þrýstijafnari fyrir íbúðina og ný lagnagrind í sameign. Viðgerð á stofu- og eldhúsglugga. Ný rafmagnstafla fyrir húsið í heild, breytt í 3x þriggja fasa mæla, dregið í fyrir rafmagnsbílahleðslustöðvar.2022 – Nýr sólbekkur í stofu.Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu