Byr fasteignasala kynnir í einkasölu KRUMMAHÓLAR 4 - ÍBÚÐ 403. Fjögurra herbergja íbúð á fjórðu hæð í lyftuhúsi í Hólunum, bílskúr, yfirbyggðar svalir til suðurs. Gott útsýni til suðurs og norðurs. ÍBÚÐ 403, FJÓRÐA HÆÐ. Eignin skiptist í íbúð á hæð 96,6 m², geymslu 4,7 m² og bílskúr 25,7m² samtals 1... Sýna meira
Byr fasteignasala kynnir í einkasölu KRUMMAHÓLAR 4 - ÍBÚÐ 403. Fjögurra herbergja íbúð á fjórðu hæð í lyftuhúsi í Hólunum, bílskúr, yfirbyggðar svalir til suðurs. Gott útsýni til suðurs og norðurs. ÍBÚÐ 403, FJÓRÐA HÆÐ. Eignin skiptist í íbúð á hæð 96,6 m², geymslu 4,7 m² og bílskúr 25,7m² samtals 127,0 m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands. Skipulag íbúðar: Skáli/anddyri, stofa, borðstofa, eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Í sameign í kjallara er sér geymsla. Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni. Bílskúr er í bílskúrslengju. í sameign er anddyri, hjóla- og vagnageymsla og sorpgeymsla. Nánari lýsing:Komið er inn í skála/anddyri með innbyggðum fataskáp, þaðan er gengið inn í önnur rými íbúðarinnar.Stofa og borðstofa eru í sama rými, þaðan er útgengt út á rúmgóðar, nýlega uppgerðar, yfirbyggðar suðursvalir. Opnanlegt fag er á svalalokun og mikið útsýni til suðurs. Eldhús með upprunalegri snyrtilegri innréttingu og borðkrókur með útsýni til suðurs. Svefnherbergin eru þrjú. Hjónaherbergi með fataskáp yfir heilan vegg, gluggi til norðurs. Barnaherbergi með einföldum fataskáp, gluggi til norðurs. Barnaherbergi með einföldum innbyggðum fataskáp, gluggi til austurs. Baðherbergi, baðkar, vaskur í innréttingu, salerni, speglaskápur, gluggi.Gólfefni; Parket á forstofu, eldhúsi og stofu og gangi að svefnherbergjum. Dúkur á gólfi svefnherbergja. Flísar á gólfi á baðherbergiSameiginlegt þvottahús er á gangi framan við íbúðina, þar er hver með sína þvottavél, gluggi. Bílskúr fylgir eigninni í bílskúrslengju við húsið. Málað gólf, rafmagnshurðaopnari með tveimur fjarstýringum. Opnanlegur gluggi er í bílskúr, heitt og kalt vatn. Í sameign í kjallara fylgir íbúðinni sér geymsla með hillum, málað gólf. Húsið er steypt+málmur byggt árið 1975, átta hæðir eru í húsinu. Húsið er klætt að utan. Myndavéladyrasími. Á fyrstu hæð er í sameign; Anddyri hússins að norðanverðu, aðalinngangur, flísar. Þar við er lyftu og stigahús. Bakgarður er gróin og liggur að opnu svæði. Anddyri hússins að sunnanverðu, þar eru póstkassar, flísar á gólfi. Geymslugangur er í kjallara með sér geymslu með hillum, málað gólf, hjóla- og vagnageymsla og sorpgeymsla. Fjölskylduvæn staðsetning þar sem stutt er í tvo leikskóla, grunnskóla (Hólabrekkuskóla) og Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Íþróttasvæði Leiknis er í göngufjarlægð, Gerðuberg og Breiðholtslaug. Stutt er í alla verslun og þjónustu. Ýtið hér fyrir staðsetningu.Hleðslustöð fyrir rafbíla er í þægilegri fjarlægð frá húsinu (Hleðslustöð On við Krummahóla), nánast í framhaldinu af bílastæðinu við Krummahóla.ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - Atli Geir Sverrisson, aðstoðarmaður fasteignasala / í námi til löggildingar - Um skoðunarskyldu:Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun. Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði | Byr fasteignasala