Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson lgfs kynna ákaflega fallega og mikið endurnýjaða þriggja herbergja íbúð í Krummahólum 4, á fjórðu hæð, með mögnuðu útsýni. Íbúðin hefur öll verið endurgerð á síðustu árum og er afar vel vandað til verka. Snjall-ljósakerfi er í íbúðinni. Eldhúsið er n... Sýna meira
Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson lgfs kynna ákaflega fallega og mikið endurnýjaða þriggja herbergja íbúð í Krummahólum 4, á fjórðu hæð, með mögnuðu útsýni. Íbúðin hefur öll verið endurgerð á síðustu árum og er afar vel vandað til verka. Snjall-ljósakerfi er í íbúðinni. Eldhúsið er nýtt, með nýjum tækjum og granít borðplötum. gólfhiti er í eldhúsi og á baði og hluta gangsins. Íbúðin sjálf er skráð 89,9 fm, þar af er geymsla í sameign 4,5 fm og bílskúrinn er 25,7 fm, alls 115,5 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands. Einstaklega vel endurgerð íbúð á þessum vinsæla stað í Hólahverfinu, sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni löggiltum fasteignasala, í síma 896-6020 eða . Fasteignamat næsta árs verður 59.600.000.-Nánari lýsing eignar:Komið er inn á flísalagt anddyri með marmara flísum, hita í gólfi og stórum og rúmgóðum fataskápTil hægri eru stofa og eldhús í alrými en til vinstri er gangur þar sem herbergin eru, en hann er flísalagður marmara flísum. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með marmaraflísum og hita í gólfi. Loft hefur verið tekið niður til að koma fyrir einkar fallegri lýsingu. Sturtuklefinn er mjög fullkominn með 6 mismunandi sturtum og stórri rainfall sturu í lofti. hátalarkerfi er í sturtuklefanum.Hjónaherbergið er stórt og rúmgott með miklu útsýni. Parket er á gólfi og veggföst hilluinnrétting sem koma má fyrir sjónvarpi og fleiru. Gott skápapláss. Barnaherbergi er með parketi á gólfi og góðum skáp.Stofan/borðstofa er tvískipt með léttum frístandandi vegg fyrir miðju sem nær ekki til lofts og skiptir rýminu í sjónvarpshol og stofu. Parket á gólfi. Á milli stofu og anddyris er búið að setja upp vegg með innfelldum hillum og LED lýsingu og er hægt að draga rennihurð fyrir og loka þannig stofunni. Útsýnið úr stofunni og borðstofunni er afar mikið og fallegt, til norðurs, vestur og austurs en sá hluti stofunnar sem áður voru svalir er einnig með hita í gólfi. Búið er að opna á milli stofu og eldhúss og setja upp eldhúsbekk sem setið er við. Innréttingin er hvítlökkuð og eru allar borðplötur með granítsteini frá Steinprýði. Span helluborð frá Siemens, ný Bosch innbyggð uppþottavél sem fylgir, og Siemens ofn. Flísar á gólfi og gólfhiti. Núverandi eigendur settu upp lítið þvottahús innan íbúðarinnar sem er flísalagt, en jafnframt er sameiginlegt þvottahús á hæðinni.Snjall-ljósakerfi er í allri íbúðinni og hafa loft verið tekin niður til að koma fyrir fallegri LED lýsingu um alla íbúðina. Bílskúrinn er með flísalagt gólf með gólfhita og stóru niðurfalli. Bílskúrshurðin er ný með inngönguhurð. Kalt og heitt rennandi vatn er í bílskúrnum. Geymsla er í sameign í kjallara, sem og sameigninleg hjóla og vagnageymsla. Gaðurinn er gróinn og fallegur.Hér er eign á ferðinni sem vert er að skoða, öll endurgerð á vandaðan hátt. Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni lgfs. í síma 896-6020 eða með tölvupósti á . Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.