Íbúð
Íbúð á efri hæð (2. hæð) í 6 íbúða húsi. Virkt húsfélag í umsjón Eignarekstri. Skipulag: forstofa, gangur, eldhús, stofa/borðstofa, 2 herbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og geymsla í kjallara. Harðparket á öllu gólfi nema baðherbergi. Hvítlakkaðar innihurðar.
Stofa
Mjög björt stofa/borðstofa með stórum endurnýjuðum glugga og sjávarútsýni. Útgengi á rúmgóðar suðursvalir. Strimlagluggatjöld.
Eldhús
Endurnýjað eldhús með hvítri U-laga innrétting úr Ikea, viðarborðplötu og vegghillum. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Bakaraofn með stálframhlið, combi ofn og span helluborð. Hvítur lofthengdur eyjuháfur (eitt gler í ljósi háfs brotið). Setuaðstaða við enda innréttingarinnar. Tvær gluggar, strimlagluggatjöld.
Svefnherbergi
Herbergi I: Rúmgott og bjort með hvítum fataskáp, hólf í gólf, glugga og útgengi á svalir. Myrkrarúllugardínur. Herbergi II: Rúmgott með stórum glugga og myrkrarúllugardínu.
Baðherbergi
Hvít innrétting með skúffum undir handlaug, viðarborðplötu og hár veggengdur skápur með hurðum og opnum hillum. Stór veggspegill, hvítur handklæðaofn, baðkar með sturtuaðstöðu. Flísar á votsvæði, annars lakkaðir veggir. Nýleg salernisskál. Opnanlegur gluggi.
Þvottahús
Þvottahús inn af eldhúsi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Borðplata fyrir vinnupláss.
Geymsla
Sérgeymsla í kjallara með hillum. Geymslan teygir sig undir stigann, gluggi. Að stærð 7 fm.
Bílskúr
Sérmerkt bílastæði fyrir hverja íbúð á lóð. 2 gestastæði.
Svalir/þak
Rúmgóðar suðursvalir frá stofu og útgengi úr herbergi I.
Félagssvæði
Sameiginlegur inngangur í snyrtilegt stigahús. Hjólageymsla aðgengileg um sérhurð á utanverðu húsinu.
Tæki
Innbyggður ísskápur, uppþvottavél, bakaraofn með stálframhlið, combi ofn.