Fasteignasalan TORG kynnir glæsilega og mikið endurnýjaða 3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð með verönd til suðurs í góðu fjölbýli við Kóngsbakka 7. Íbúðin hefur nýlega verið tekin í gegn. Endurnýjaðar allar innréttingar, eldhús og baðherbergi endurnýjað, hitalagnir sett í gólf, og allar hurðir endurný... Sýna meira
Fasteignasalan TORG kynnir glæsilega og mikið endurnýjaða 3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð með verönd til suðurs í góðu fjölbýli við Kóngsbakka 7. Íbúðin hefur nýlega verið tekin í gegn. Endurnýjaðar allar innréttingar, eldhús og baðherbergi endurnýjað, hitalagnir sett í gólf, og allar hurðir endurnýjaðar. Raflagnir endurnýjaðar og vatnslagnir yfirfarnar. Virkilega falleg og góð íbúð miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, samgöngur, skóla, leikskóla, fjölbrautarskóla, verslun, líkamsrækt, sund og íþróttir.Allar upplýsingar veitir Gunnar Patrik Sigurðsson lgf. í síma 822-9415 / Eignin Kóngsbakki 7 er skráð sem hér segir hjá FMR: Birt stærð 79.4 fm og þar af geymsla 7,3 fmNánari lýsingSameiginlegur inngangur: Gengið er inn í húsið um aðalinngang sem liggur inn í stigagang. Stigagangurinn er hreinlegur og með teppi.Stofa: Gengið er beint inn í stofu úr stigagangiSvefnherbergi I: Hjónaherbergi með góðum skápumSvefnherbergi II: Barnaherbergi með góðum skápumBaðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, walki-in sturta með innbyggðum blöndunartækjum, handklæðaofn og hvítar innréttingar með góðum skáp.Þvottahús: Þvottarhús er inn af eldhúsi, einnig er sameiginlegt þvottarhús í kjallara.Eldhús: Eldhúsið er með fallegum nýjum innréttingum og tækjum.Geymsla: Góð geymsla er í kjallaraVerönd: Falleg verönd sem snýr út í stóran og opin garð með leiktækjum. Veðursæld á sumrin í stóra garðinum nánast hvernig sem veðurátt er.Ástand íbúðar: Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð.- Allar raflagnir eru nýjar- Vatnslagnir eru yfirfarnar. Ný blöndunartæki og nýjar tengingar frá þeim.- Baðherbergi tekið í gegn, flísalagt í hólf og gólf, walk-in sturta með innbyggðum blöndunartækjum. Nýr handklæðaofn, nýtt klósett og innréttingar.- Hitalagnir í öllum gólfum. ( Salus stýrikerfi), þráðlaust.- Gólf flotuð og lökkuð.- Nýjir fataskápar inn í herbergjum og frammi á gangi.- Nýjar innréttingar í eldhúsi, nýr ofn og nýtt spanhelluborð frá Heimilistækjum.- Allar hurðir endurnýjaðar og ný eldvarnarhurð fram á stigagang.- Gluggar málaðir og þéttir.- Öll íbúðin var máluð.- Nýlegur dyrasími, 2ára.- Verönd og grindverk smíðað 2022.Í sameign: Er 7,3fm sérgeymsla með hillum ásamt sameiginlegu þurkkherbergi og ræstingar rými. Sameiginlega hjóla- og vagnageymsla.Húsið: Framkvæmdir eru væntanlegar á húsi að utan á gluggum en í framkvæmdarsjóð eru um 38 milljónir og hússjóð rúmar 8 milljónir. Nánari upplýsingar um fyrirhugaðar framkvæmdir fást hjá fasteignasala. Húsið er annars að mestu leyti í góðu ástandi.Garðurinn: Sameiginlegur garður er búinn leiktækjum og mjög góð aðstaða fyrir barnafólk.Nágrenni: Stutt er í alla þjónustu og skóla.Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald kr. 2.700.- kr. af hverju skjali. 3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.