Erling Proppé & REMAX kynna: Glæsileg þriggja herbergja Íbúð á fimmtu hæð með sjávarútsýni, aukinni lofthæð og stórum gluggum í miðbæ Reykjavíkur. Allar innréttingar og tæki eru sérvalin af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild, öll tæki og tæknibúnaður er fyrsta flokks. Íbúðin er málu... Sýna meira
Erling Proppé & REMAX kynna: Glæsileg þriggja herbergja Íbúð á fimmtu hæð með sjávarútsýni, aukinni lofthæð og stórum gluggum í miðbæ Reykjavíkur. Allar innréttingar og tæki eru sérvalin af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild, öll tæki og tæknibúnaður er fyrsta flokks. Íbúðin er máluð í ljósum lit. Hurðar í yfirstærðum eru einnig sprautulakkaðar í sama lit. Ytra efnisval bygginganna er í hæðsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur. Sameignagangar sérlega glæsilegir og minna á hótel, vandaðar eignir í sérflokki. Allar frekari upplýsingar: Erling Proppé lgf. // 690-1300 // SMELLTU HÉR TIL AÐ SJÁ VIDEO AF EIGNINNI. Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: nánar tiltekið eign merkt 05-03, birt heildarstærð 118,40 fm, þar af geymsla 7,4 fm. Nánari lýsing: Grand volcano harðparket af þykkustu gerð frá Birgisson í dökkum lit flæðir í gegnum íbúðina, þröskuldarlaust þar sem á við, nema á votrýmum þar eru vandaðar ítalskar flísar. Forstofa: Fataskápar eru í anddyri, rúmgóðir, þrefaldir, spónlagðir að innan með lýsingu. Ytra byrði er sprautu lakkað í litaþema íbúðarinnar. Innvols er frá Innval með fylgihluti af vandaðri gerð.Alrými: Borðstofa/stofa er eitt opið rými sem tengir saman íbúðina. Stórir gluggar með sjávarútsýni. Útgengt út á svalir. Eldhús: Borðplata, hvít Meganite borðplata og innbyggður vaskur úr sama efni. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja. Blöndunartæki eru svört á lit frá Vola, hönnuð af Arne Jacobsen.Eldhústæki: Blástursofn, spanhelluborð og ísskápur frá Siemens (dökkt stainless steel) með Home Connect tengingu sem hægt er að stjórna úr snjallsíma eða spjaldtölvu. Gufugleypir er innbyggður í eyju, frá Elica, tegund Easy.Innréttingar: Vandaðar innréttingar frá Noblessa í Þýskalandi og GKS með ljúflokunum á skápum og skúffum.Baðherbergi: Er flísalagt með ítölskum gæðaflísum með marmaramynstri frá Iris. Innrétting er í litaþema íbúðar, háglans grá frá Noblessa með Meganite borðplötu og innbyggðum vaski úr sama efni. Speglaskápur með lýsingu sem heitir Mini Glo Ball frá Flos. Hreinlætistæki eru frá Vola. Salerni upphengd með innbyggðum vatnskassa.Hjónaherbergi: Fataskápar í svefnherbergjum eru spónlagðir að innan og með hurðum og ytra byrði sem eru sprautu lakkaðar í litaþema íbúðarinnar. Innvols er frá Innval með fylgihluti af vandaðri gerð. Innaf hjónaherbergi er innangengt inn á glæsilegt en-suite baðherbergi þar sem búið er að setja upp HALO baðkar frá Balteco úr Tengi.Svefnherbergi II: Er rúmgott, léttur veggur skilur að alrými, lagt var upp með því að þetta herbergi hefði not sem bæði herbergi eða sjónvarpsaðstaða. Þvottahús: Rúmgott þvottahús, flísalagt með sömu flísum og á baðherbergi. Innrétting er frá Noblessa í sama litaþema. Vinnuvaskur og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.Geymsla: 7,4 fm geymsla í sameign, gólf í séreignageymslu er lakkað og með kerfislofti. Léttir veggir eru úr gipsplötuveggjum, málaðir í ljósum lit.Sameign: Í sameign er einnig sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.Bílastæði: Íbúum Hafnartorgs stendur til boða að leigja bílastæðakort skv. verðskrá bílageymslu Hafnatorgs, undir byggingunum er einn stærsti bílakjallari landsins með um 1160 bílastæðum.Hafnartorg skartar 70 hágæða íbúðum. Allar innréttingar og tæki eru sérvaldar af innanhúsarkitekt til að mynda eina stílhreina heild og eru öll tæki og tæknibúnaður fyrsta flokks. Allt ytra efnisval bygginganna er í hæsta gæðaflokki sem og allur lóðarfrágangur. Undir húsunum er stærsti bílakjallari landsins sem nær allt til Hörpunnar. Íbúðirnar eru frábærlega staðsettar í nálægð við menningu, sögu, verslun og þjónustu. Glæsilegar fasteignir í hjarta Reykjavíkur með iðandi mannlíf allt árið um kring.Vegna mikilla umsvifa á fasteignamarkaðinum óska ég eftir öllum eignum á skrá, vönduð vinnubrögð og frítt skuldbindingarlaust verðmat. Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við: Erling Proppé lgf // 690-1300 // Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.