Eignin er seld og er í fjármögnunarferli. Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega glæsilega118,9 fermetra 4ra - 5 herbergja mjög mikið endurnýjaða íbúð á 4. hæð (efstu) með suðusvölum og glæsilegu útsýni yfir Laugardalinn, borgina, að Bláfjöllum, yfir sundin og að Esjunni. ... Sýna meira
Eignin er seld og er í fjármögnunarferli. Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega glæsilega118,9 fermetra 4ra - 5 herbergja mjög mikið endurnýjaða íbúð á 4. hæð (efstu) með suðusvölum og glæsilegu útsýni yfir Laugardalinn, borgina, að Bláfjöllum, yfir sundin og að Esjunni. Íbúðin var mjög mikið endurnýjuð hið innra árið 2017. Þá var skipt um öll gólfefni, innihurðir, baðherbergi endurnýjað, eldhúsinnréttingar og tæki endurnýjuð o.fl. Klóaklagnir undir húsi og út í götu eru tiltölulega nýlegar, rafmagnstöflur fyrir húsið endurnýjaðar að miklu leyti sem og nýleg rafmagnstafla fyrir eldhús íbúðarinnar, stigahús var teppalagt og málað árið 2016, þakjárn, þakpappi, þakrennur og niðurföll voru endurnýjuð árið 2013 og hús að utan var viðgert og málað árið 2015. Á sama tíma og hús að utan var viðgert og málað var skipt um hluta glugga á suðurhlið hússins og hluta glers og glugga í stigahúsi. Hljóðeinangrandi gler var sett í norður hlið hússins árið 2007. Lýsing eignar: Forstofa, flísalögð og með fatahengi. Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og veggir, vaskskápur, fastur spegill með lýsingu, vegghengt wc og flísalögð sturta með sturtugleri. Hol, parketlagt og bjart með gólfsíðum gluggum og opnanlegu fagi til norðurs. Úr hluta hols væri hægt að gera 4. svefnherbergi íbúðarinnar. Barnaherbergi I, parketlagt og rúmgott með fallegu útsýni til norðurs út á sundin og að Esjunni. Svefngangur, parektlagður og með innbyggðum skáp í vegg. Barnaherbergi II, parketlagt. Hjónaherbergi, parketlagt og stórt með fataskápum og útgengi á skjólsælar svalir til suðurs með frábæru útsýni yfir borgina og að Bláfjöllum. Þvottaherbergi, flísalagt gólf og vélar í vinnuhæð. Eldhús, opið við stofu, parketlagt og með nýlegum fallegum hvítum innréttingum með flísum á milli skápa og graníti á borðum. Tengi fyrir uppþvottavél, nýleg tæki og tvöfaldur ísskápur með klakavél. Í eldhúsi er eyja með nýlegu spanhelluborði, öll klædd með quartz og með áfastri borðaðstöðu. Stofa, mjög stór, parketlögð og björt með miklum gluggum til suðurs og útgengi á skjólsælar svalir til suðurs. Virkilega fallegs útsýnis nýtur úr stofu yfir borgina, að Bláfjöllum og yfir Laugardalinn. Í stofu er stór og fallegur arinn, hlaðinn úr Drápuhlíðargrjóti. Í kjallara hússins eru: Sér geymsla, 8,0 fermetrar að stærð með glugga og hillum. Sameiginleg hjólageymsla, stór og með útgengi á baklóð. Sameiginlegt þvotta- og þurrkherbergi, mjög snyrtilegt, bjart og rúmgott með góðum gluggum til suðurs og útgengi á lóð. Sér tenglar fyrir hverja íbúð eru í þvottaherbergi. Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu Fletta í fasteignalista