BJÖRT OG RÚMGÓÐ 4-5 HERB. ENDAÍBÚÐ Á 1.HÆÐ - 104 REYKJAVÍKSamkvæmt skráningu Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 110,4 fm.Íbúðin er 4-5 herb. á 1. hæð með glugga á þrjá vegu í fjölbýlishúsi byggðu árið 1966 en mikið hefur verið endurnýjað í húsinu.
Gengið er inn í rúmgott hol með fataskápum, beint á móti inngangi er svefnálman með þremur svefnherbergjum og baðherbergi. Til vinstri í holinu er gengið inn í eldhúsið, en einnig er hægt að ganga inn í eldhúsið úr stofunni. Stofan og borðstofan eru rúmgóðar með glugga á tvo vegu, útgangur út á vestur svalir eru úr stofunni. Sér þvottahús er innan íbúðar inn af eldhúsinu. Tvær svalir. Sér 6,2 fm. geymsla fylgir íbúðinni í kjallara hússins sem og sameiginleg vagna- og hjólageymsla.
Forstofa/hol: Rúmgott með parketi á gólfi og gott fataskápahorn.
Stofa/borðstofa: Bjartar og rúmgóðar með parketi á gólfum, útgangur út á skjólgóðar vestur svalir úr stofunni.
Eldhús: Eldri innrétting með miklu skápaplássi, borðkrókur og korkflísar á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt, baðkar með sturtuhengi og innrétting við handlaug.
Svefnherbergin: Hjónaherbergi með góðu skápaplássi, útgangur út á austur svalir, parket á gólfum.
Svefnherbergishol: Aðskilur svefnherbergin og baðherbergið, parket á gólfi.
Þvottahús: Sér þvottahús er inn af eldhúsi með borði og hillum, korkflísar á gólfi.
Geymsla: Sér 6,2 fm. geymsla með hillum er í kjallara.
- Húsið er klætt að utanverðu á þrjá vegu og skipt hefur verið um alla glugga og svalahurð á íbúðinni.
- Rafhleðslustöðvar komnar upp á bílastæðum fyrir framan húsið.
- Ljósleiðari er kominn inn í íbúðina.
- Snyrtileg sameign.
Að sögn eigenda hefur húsið fengið gott viðhald í gegnum tíðina; Árið 2017 var settur nýr þakdúkur á húsið. Skólp og dren endurnýjað/fóðrað árið 2025. Verið er að ganga frá stétt fyrir framan húsið með snjóbræðslu.
ATH! STUTT Í LEIK-, GRUNN- OG MENNTASKÓLA, ÁSAMT GÓÐUM VERSLUNARKJARNA SVO EKKI SÉ MINNST Á SJÁLFAN LAUGARDALINN!Allar nánari uppl. og skoðun veitir: Jóhann Friðgeir, lgf. GSM: 896-3038 e-mail: johann@hofdi.is