Gimli fasteignasala, Ólafur B. Blöndal og Lilja Hrafnberg kynna:
SÉRLEGA VANDAÐ 4RA HERBERGJA ENDARAÐHÚS Á EINNI HÆÐ ÁSAMT BÍLSKÚR. EIGNIN SEM ER Í HEILDINA SKRÁÐ 130 FM SKIPTIST Í FORSTOFU, ELDHÚS/ STOFU/ BORÐSTOFU SEM FLÆÐA SAMAN Í OPNU ALRÝMI MEÐ ÚTGENGI Á VERÖND, ÞRJÚ SVEFNHERBERGI, BAÐHERBERGI, ÞVOTTAHÚS, GEYMSLU OG 25,4 FM BÍLSKÚR. LÚXUSEIGN MEÐ GÓLFHITA OG UPPTEKNUM LOFTUM. HÚSIÐ AFHENDIST EFTIR SAMKOMULAGI, FULLBÚIÐ AÐ INNAN (ÁN GÓLFEFNA) SEM UTAN (BST.4). LÓÐ ÞÖKULÖGÐ, PALLUR MEÐ SKJÓLVEGG OG BÍLAPLAN FRÁGENGIÐ MEÐ DRENMÖL.
Nánari upplýsingar veita: Ólafur B. Blöndal Löggiltur fasteignasali í síma 6900811, olafur@gimli.is og Lilja Hrafnberg Viðskiptafræðingur/Löggiltur fasteignasali, í síma 8206511, lilja@gimli.is Sjá myndband með þrívíddarteikningum af eigninniNÁNARI LÝSING:Húsið er byggt úr timbri en sökklar og gólfplata er steypt. Útveggir eru klæddir að utan með báruáli. Stölluð klæðning er á þaki og þakkantur er klæddur furupanil. Gluggar og hurðir eru úr timbri klæddir með áli. Útiljós er í útvegg við aðalinngang og við hurð útá pall. Tvö ídráttarrör eru út í garð, t.d fyrir pott og rafmagn. Gert er ráð fyrir rafbílahleðslu.
Frágangur innanhúss:Gólf er rykbundið nema á baðherbergi sem er flísalagt. Útveggir og innveggir klæddir með OSB sem innra lag og gipsplötum sem ytra lag. Í baðherbergi eru veggir við sturtu flísalagðir. Aðrir veggir er málaðir með votrýmismálningu. Allir veggir eru fullmálaðir. Loft, önnur en í baðherbergi, eru klædd með loftaþiljum. Í baðherbergi er loft klætt með rakaþolnu gipsi, full málað. Fráveitulagnir eru full frágengnar og þrifatæki uppsett og tengd. Neysluvatnslagnir er tengdar við stofninntak, fullgerðar og frágengnar að tækjum. Gólfhitakerfi er fullgert og frágengið með hitastýringum. Eldhúsinnrétting er uppsett og fullfrágengin með helluborði, ofni og hólfi fyrir ísskáp og uppþvottavél. Fataskápar eru uppsettir og frágengnir í öllum svefnherbergjum. Þvottahúsinnrétting er uppsett og fullfrágengin með blöndunartækjum. Fataskápur í forstofu er uppsettur og frágengin. Innrétting í baðherbergi er uppsett og fullfrágengin með blöndunartækjum. Innréttingar er frá Voke3, innhurðir hvítar frá Byko og tæki frá AEG/Siemens.
Byggingaraðili er Straumar byggingafélag.Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta.
Gimli, gerir betur...Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími:
570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isHeimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.
Gimli gerir betur...