Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Kjarnagata 65 íbúð 204 - Nýleg 3-4ra herbergja íbúð með sér inngangi á efri hæð í norður enda í litlu fjölbýlishúsi í Hagahverfi - stærð 87,5 m²
Virkilega skemmtilegt útsýni er úr íbúðinni- Vandaðar innréttingar frá GKS, svartar plastlagðar, Nero oak.
- Hvítar innihurðar- Innbyggður ísskápur með frysti og uppþvottavél fylgja með við sölu eignar
- Hljóðdempandi plötur í öllum loftum íbúðar nema baðherbergi.
- Innfelld led-lýsing í öllum rýmum íbúðar og Plejd snjallstýring
- Aukin lofthæð
- Húsið er steypt og var íbúðin tekin í notkun árið 2023.Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, þrjú svefnherbergi (eitt skráð sem geymsla) og baðherbergi með þvottaaðstöðu.
Í sameigninni er sér geymsla, skráð 3,3 m² að stærð og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.Forstofa og gangur eru með ljósu harðparketi á gólfi og svörtum skáp.
Eldhús, vönduð L-laga svört plastlögð innrétting (Nero oak) með grárri borðplötu og svörtum vask. Mjúklokun er á skúffum og skápum. Uppþvottavél og ísskápur með frysti eru innbyggð í innréttingu og fylgja með við sölu eignar.
Stofa og eldhús eru í opnu rými þar sem ljóst harðparket er á gólfi, gluggar til tveggja átta og rennihurð út á steyptar vestur svalir, skráðar 8,2 m² að stærð.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með ljósu harðparketi á gólfi og svörtum plastlögðum fataskápum. Stærð svefnherbergja er skv. teikningum 9,1 og 11,8 m².
Geymsla hefur verið nýtt sem þriðja svefnherbergið, þar er harðparket á gólfi og fataskáp. Stærð geymslu er skv. teikningum 8,3 m².
Baðherbergi er með gráum flísum á gólfi og hluta veggja, svartri plastlagðri innréttingu og speglaskáp, upphengdu wc og walk-in sturtu. Stæði er í innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.
Sér geymsla er á jarðhæðinni, skráð 3,3 m² að stærð.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.