Gimli fasteignasala kynnir: Virkilega góða 3ja herbergja íbúð á 4 hæð með frábæru útsýni yfir Reykjanesið og til Bláfjalla. Um er að ræða mikið uppgerða íbúð sem er skráð samkvæmt fasteignamati ríkisins 83,0 fm þar af geymsla 4,4 fm. Samkvæmt teikningu skiptist eignin í hol, eldhús, stofu/borðstofu ... Sýna meira
Gimli fasteignasala kynnir: Virkilega góða 3ja herbergja íbúð á 4 hæð með frábæru útsýni yfir Reykjanesið og til Bláfjalla. Um er að ræða mikið uppgerða íbúð sem er skráð samkvæmt fasteignamati ríkisins 83,0 fm þar af geymsla 4,4 fm. Samkvæmt teikningu skiptist eignin í hol, eldhús, stofu/borðstofu í alrými, 2 herbergi, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara og geymslu.Eldhúsinnrétting og tæki endurnýjuð árið 2018. Kvarts steinn á borðum, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Nýr eldhúsgluggi. Nýlegt harðparket frá Birgisson á allri íbúðinni fyrir utan baðherbergið sem er flísalagt. Nánari upplýsingar veitir Elín Urður Hrafnberg, Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 690-2602 eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til NÁNARI LÝSING:Hol: Með harðparketi á gólfi og forstofuskáp.Eldhús: Nýleg falleg innrétting með flísum á milli skápa og ledljósum, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, háf, ofni, helluborði og Kvarts steini frá Grantítsmiðjunni.stofa/borðstofa: virkilega björt með harðparketi á gólfi og virkilega fallegu útsýni. Skjólgóðar suður svalir.Hjónaherbergi: með harðparketi og góðum skápum með rennihurð.Svefnherbergi: með harðparketi og skáp.Baðherbergi: flísalagt, sturta með glerlokun, upphengdu wc, vaski, skáp, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, handklæðaofni og glugga. Sameigninlegt þvottahús á jarðhæð: mjög rúmgott og bjart með sér tenglum fyrir hverja íbúð, stórt þurrkherbergi og útgengi út úr þvottahúsi á baklóð. Geymsla: á jarðhæð með hillum.Sameign: hjóla og vagnageymsla á jarðhæð með útgengi á framlóð. Framkvæmdir á húsinu. Húsið lítur vel út og var sprunguviðgert og málað árið 2016.Yfirstandandi framkvæmdir á vegum húsfélags; Búið er að yfirfara glugga og skipta út þeim gluggum sem talið var þörf á, ásamt sprunguviðgerðum (sumar 2023).Fyrirhugaðar framkvæmdir á vegum húsfélags; Á aðalfundi var samþykkt að afla tilboða í að skipta um þak.Úttekt hefur farið fram á ástandi hússins.Niðurlag:Virkilega falleg eign, björt og opin með gluggum á þrjá vegu til suðvesturs, suðausturs og norðausturs. Lóðin er falleg og vel hirt.Virkilega góð staðsetning miðsvæðis í Vesturbænum. Stutt er í alla útivist við Ægisíðuna, íþróttasvæði KR, skóla, leikskóla, sundlaug Vesturbæjar, Melabúðina og fl.Eign sem vert er að skoða.Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.vÞinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.