Gimli Fasteignasala hefur fengið til sölu fallegt, vandað og vel við haldið 184,6 fm einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr í Hólahverfi á Selfossi. Í eigninni eru fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi og stór fallega gróinn garður með verönd og heitum potti.
-Eignin er seld og fellur því fyrirhugað opið hús niður-
Frekari upplýsingar veitir Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse,
Löggiltur fasteignasali, í
síma 792 7576 gudmunda@gimli.is
Lýsing: Húsið er á einni hæð, timburhús sem er áklætt. Íbúðarrými er 129,8fm, geymsla/herbergi og bað inn af forstofu 14,5fm og bílskúr 33,3fm, samtals 184,6fm. Gengið er inn af skjólgóðri verönd í rúmgóða forstofu með fataskáp. Úr forstofu er gengið inn á gang með baðherbergi og herbergi sem skv. teikningum er skrá geymsla. Af gangi er innangengt í bílskúr. Úr forstofu er gengið inn í sjónvarpshol. Úr holi eru þrjú svefnherbergi og bað, á vinstri hönd, og stofa og eldhús á hægri hönd. Hjónaherbergi er me glugga á tvo vegu og góðum fataskápum sem ná upp í loft. Svefnherbegi II og III eru rúmgóð með tvöföldum skápum sem ná upp í loft. Baðherbergi er með hornbaðkari og sturtu, góðri innréttingu og upphengdu salerni.
Gott flæði er úr holi inn í eldhús og stofurými, en veggur á milli borðstofu og stofu er léttur og flísalagt er undir veggnum svo einfallt er að fjarlægja hann. Eldhús er með vandaðri innréttingu, innbyggðum ísskáp og innbyggðri uppþvottavél, rafmagnshelluborði og bakaraofni í innréttingu. Borðstofa er hluti af eldhúsi og er með fallegum glugga. Gengið er úr eldhúsi inn í búr/þvottahús með góðum skáp og innréttinu og þaðan er hurð út í garð. Stofan er björt og rúmgóð með hurð út á verönd. Upptekin loft eru í eigninni og innfelld lýsing, öll rými eru flísalögð en gólfhiti er í allri eigninni. Húsið stendur á gróinni 770fm hornlóð með veglegum palli, heitum potti og stóru bílaplani. Möguleiki er á að leggja húsbíl eða hjólhýsi.
Vönduð og vel við haldin eign í stuttu göngufæri við Sunnulækjarskóla, FSU og íþróttasvæði.
Frekari upplýsingar veitir Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse,
Löggiltur fasteignasali, í
síma 792 7576 gudmunda@gimli.is Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.
Gimli gerir betur...