Jaðarstún 12 - 201
Einstaklega falleg og björt fjögurra herbergja 94,3m
2 íbúð á 2. hæð í fjögurra íbúða húsi á vinsælum stað í Naustahverfi. Svalir til vesturs. Mjög flott útsýni úr íbúð.
**** Afhending 1. Júlí 2026 *****
Eignin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í opnu rými, þrjú svefnherbergi og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Forstofa flísar á gólfi og fataskápur.
Eldhús/borðstofa er í opnu og björtu rými þaðan sem er mjög gott útsýni. Harðparket á gólfum eikarinnrétting sem er mjög rúmgóð með dökkum borðplötum og flísum milli efri og neðri skápa, innbyggð uppþvottavél, innbyggður ísskápur og bakaraofn í vinnuhæð. Úr eldhúsi er útgengt á rúmgóðar svalir sem snúa til vesturs með útsýni.
Stofa mjög björt, harðparketi á gólfi, stór gluggi með útsýni.
Svefnherbergi eru þrjú, öll með parket á gólfum og fataskápar í öllum.
Baðherbergi er mjög rúmgott með ljósum flísum á veggjum og dökkum á gólfi. Rúmgóð eikarinnrétting, einnig er innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Upphengt salerni, sturta með glerhurð, opnanlegur gluggi.
Annað:
- Allar innréttingar og innihurðir eru með spónlagðri eik.
- Sameiginleg geymsla í lagnarými er undir stigapalli.
- Ljósleiðari
- Gólfhiti
- Hverri íbúð fylgja 2 bifreiðastæði á sameiginlegu bifreiðastæði framan við hús.
- Mjög vinsæl staðsetning, rétt við golfvöllinn að Jaðri, matvöruverslun og stutt í leik- og grunnskóla.
- Eignin er í einkasölu á FS fasteignir ehf