Íbúð
Timburhús klætt með endingargóðri álklæðningu og litaðri bárujárnþakklæðningu. Þarfnast lítils viðhalds. Skiftist í forstofu, hjónasvítu með innan gengnu baðherbergi, baðherbergi, þvottahús, barnaherbergi, opið alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi.
Stofa
Opið, bjart og rúmgott rými sem hluti af alrýminu. Vínilparket á gólfum.
Eldhús
Eldhús í alrýminu með eldhúseyju og vönduðum innréttingum frá HTH. Með ofni í vinnuhæð og spanhelluborði.
Svefnherbergi
Hjónasvíta: Rúmgott með góðum skápum. Barnaherbergi: Öll rúmgóð með fataskápum og víníldúk á gólfum.
Baðherbergi
Baðherbergi I: Innangengið í hjónasvítu, með upp hengdu salerni, sturtu og innréttingu, flísalagt bæði á veggjum og gólfi. Aðalbaðherbergi II: Með sturtu og fallegum innréttingum frá HTH, flísalagt á veggjum og gólfi.
Þvottahús
Þvottahús: Vel skipulagt með innréttingum og þægilegri vinnuhæð fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla
Fataskápar í forstofu og svefnherbergjum.
Bílskúr
Sambyggður bílskúr, 41,7 fm. Mögulegt er að útbúa stúdíó íbúð í bílskúrnum, allar lagnir til staðar.
Garður
Frágengin lóð þökulögð með malarplani og ruslatunnuskýli.
Önnur herbergi
Forstofa: Rúmgóð, flísalögð með fallegum fataskáp frá HTH og fallegri næturlýsingu.
Tæki
Ofn í eldhúsi. Þægileg vinnuhæð fyrir þvottavél og þurrkara í þvottahúsi.
Svæði
Á fallegum stað á Eyrabakka.
Efni
Timburhús klætt með endingargóðri álklæðningu og litaðri bárujárnþakklæðningu. Flísalagt í forstofu og baðherbergjum. Vínilparket í alrýminu. Svart sprautulakkaðar eikarhurðar frá Birgisson. Innréttingar og fataskápar frá HTH.