** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun- Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, aðstoðarmaður fasteignasala - eða 690-8040 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 65,8 m2, 2ja herbergja íbúð á 2.hæð með sérinngangi af svalaga... Sýna meira
** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun- Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, aðstoðarmaður fasteignasala - eða 690-8040 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 65,8 m2, 2ja herbergja íbúð á 2.hæð með sérinngangi af svalagangi við Hulduhlíð 9 í Mosfellsbæ. Íbúðin skiptist í svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, geymslu innan íbúðar, eldhús og stofu/borðstofu. Svalir í suðurrátt. Vinsæll staður rétt við skóla, leikskóla, sundlaug, líkamsrækt og golfvöll.Nánari lýsing:Forstofa er með flísum á gólfi og fatahengi.Svefnherbergi er með fataskápum og parketi á gólfi.Baðherbergi er flísalagt. Innrétting, skápur, handklæðaofn og baðkar með sturtuaðstöðu. Innaf baðherbergi er þvottaherbergiÞvottaherbergi er með flísum á gólfi. Tengi er fyrri þvottavél og þurrkara.Eldhús, stofa og borðstofa er í opnu rými með parketi á gólfi. Í eldhúsinnréttingu er ofn og helluborð. Úr stofu er gengið út á svalir í suðurátt.Af gangi er aðgengi upp á háaloft sem er yfir íbúðinni sem hefur verðið notað sem geymslu loft.Geymsla er innan íbúðar og með parketi á gólfi.Íbúðinni fylgir hlutdeild að sameignlegri hjóla- og vagnageymslu.Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2024 er kr. 53.650.000,-Verð kr. 51.900.000,- Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.