Glæsileg ný 157,5 fm 5 herbergja (4 svefnh.) raðhús á einni hæð með bílskúr við Huldudal 31 og 33 í Reykjanesbæ. Eignirnar skiptist þannig að húsin sjálf eru 135,8 fm og bílskúr 21,7 fm skv. HMS. Húsin skilast fullbúin að utan og innan, utan megingólfefna. Lóð skilast grófjöfnuð. Sjá nánari upplýsingar um skil í skilalýsingu seljanda.
Nánari lýsing skv. teikningum: Anddyri með skápum. Innangengt er í bílskúr frá anddyri. Gestasalerni. Þvottahús með vaski og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Fjögur rúmgóð svefnherbergi með skápum. Stofa, borðstofa og eldhús í rúmgóðu alrými. Eldhús með eyju og góðu skápaplássi. Rennihurð frá alrýminu er út á verönd. Baðherbergi með walk-in sturtu og útg. á verönd.
- Húsin eru upphituð með gólfhita - Húsin eru staðsteypt, einangruð að utan og klædd með báru-áli - Gluggar, hurðir og opnanleg fög eru úr ál/tré kerfi - Gluggar eru settir í eftirá. Gler er tvöfalt einangrunargler, K-gler. - Húsið skilast með útiljósum á klæðningu. - Steyptur stoðveggir milli lóða, skilast ómeðhöndlaðir. - Innréttingar frá AXIS - Flísar frá Parka - Grohe blöndundartæki. - Sjá allar nánari upplýsingar um skil í skilalýsingu seljanda