Fasteignasalan TORG kynnir: Bjarta og rúmgóða 3ja herbergja útsýnisíbúð á 10.hæð við Hrísmóa 1 í Garðabæ. Tvennar sólríkar svalir með stórkostlega fallegu útsýni til suðurs og vestur. Eignin er skráð 96,6fm að stærð og þar af 5,7 fm geymsla. Íbúðin skiptist í forstofu, 2 svefnherbergi, eldhús, búr, ... Sýna meira
Fasteignasalan TORG kynnir: Bjarta og rúmgóða 3ja herbergja útsýnisíbúð á 10.hæð við Hrísmóa 1 í Garðabæ. Tvennar sólríkar svalir með stórkostlega fallegu útsýni til suðurs og vestur. Eignin er skráð 96,6fm að stærð og þar af 5,7 fm geymsla. Íbúðin skiptist í forstofu, 2 svefnherbergi, eldhús, búr, borðstofu/setustofu, baðherbergi og þvottahús innan eignar. Það eru tvennar svalir en gengið er út á þær frá eldhúsi og svefnherbergi. Rafdrifnar hurðir í anddyri hússins. Lyfta er í húsinu og fjöldi bílastæða við húsið. Allar nánari upplýsingar veitir Gunnar Patrik Sigurðsson, löggiltur fasteignasali, í síma 822-9415 eða með tölvupósti: Nánari lýsing: Gengið er inn í flísalagða forstofu. Úr forstofu er gengið inn í þvottahús með flísum á gólfi sem er notað sem fataherbergi í dag. Hjónaherbergið er með flísum á gólfi og góðum fataskáp. Frá hjónaherbergi er gengið út á vestursvalir með fallegu útsýni. Barnaherbergi er með flísum á gólfi og lausum fataskáp. Stórt og bjart alrými með flísum á gólfi sem skiptist í rúmgott eldhús ásamt búri innan af eldhúsi. Snyrtileg innrétting, helluborð og bakarofn í kringum þriggja ára. Gufugleypir nýr. Nýlegur ísskápur og uppþvottavél fylgja. Útgengt er á suðursvalir. Í stofu eru gluggar á tvenna vegu með frábæru útsýni. Baðherbergið er með þvottaaðstöðu og sturtu. Flísar eru á gólfi og veggjum. Á fyrstu hæðinni er 5,7 fm geymsla. Sameign hússins er vönduð og vel um gengið. Á fyrstu hæð hússins er anddyrisbygging en þar er nýlega endurnýjaður myndavéladyrasími og mótordrifnar hurðar. Hjóla- og vagnageymsla er á fyrstu hæð ásamt öðrum sameiginlegum rýmum. Lyfta er í húsinu og næg bílastæði við húsið. Fyrstu rafhleðslutengingar fyrir bíla eru komnar upp á bílaplani og mun þeim fjölga. Öll helsta þjónusta er í göngufæri s.s. matvöruverslanir, heilsugæsla, tannlæknar, veitingastaðir, ísbúð, apótek, snyrtistofa ofl.Allar nánari upplýsingar veitir Gunnar Patrik Sigurðsson, löggiltur fasteignasali, í síma 822-9415 eða með tölvupósti: Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.