Jason Ólafsson, fasteignasali sími 7751515 og Betri Stofan kynna: Hraunbraut 22 - einbýli sem er 252,6 fm á Kársnesinu 200 Kópavogi sem er með glæsilegu
útsýni og rúmlega
65 fm aukaíbúð með sérinngangi á neðri hæð.
Einnig er innangengt á milli hæða.
Gott fjölskylduhús við Hraunbraut 22 í Kópavogi. Stórar þaksvalir.
Nánari upplýsingar veitir: Jason Ólafsson s. 775 1515 - löggiltur fasteignasali.Nánari lýsing:
Gengið inní
anddyri með ljósum flísum á gólfi.
Rúmgott
þvottahús með sturtuaðstöðu.
Þreföld stofa, borðstofa, stofa og arinstofa með glæsilegu
útsýni til sjávar og yfir til Nauthólsvíkur og víðar.
Eldhúsið er með hvítri innréttingu. Hvítar flísar á gólfi. Gengið inní eldhús úr holi og borðstofu.
Svefnherbergisgangur er með
þremur svefnherbergjum og einu baðherbergi með sturtu.
Neðri hæð:
Hægt er að ganga niður hringstiga innan íbúðar niður á
neðri hæð.Að auki er
sérinngangur í íbúðina á neðri hæð. Möguleiki er að hafa opið á milli eða loka.
Gólfhiti og fallegar flísar eru í anddyri.
Stofa með bogadregnum rúðum.
Baðherbergi með fallegum flísum.
Svefnherbergi með fataskáp.
Gólfhiti á neðri hæð fyrir utan svefnherbergi.
Bílskúr með hita og vatni. Stærð bílskúrs er 28 fermetrar.
Skólar í nágrenninu og góðar gönguleiðir.
Falleg lóð og tjörn í garðinum
Nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson s. 775 1515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.