Eignamiðlun kynnir:Rúmgóð og björt 123,1 fermetra fjölskylduíbúð í enda hússins, rúmgóð og björt stofa, þrjú svefnherbergi innan íbúðar og eitt rúmgott unglingaherbergi með aðgangi að salerni á jarðhæð. Vel hannað hús eftir Kjartan Sveinsson. Geymsla á jarðhæð. Stutt í leikskóla, skóla og þjónustu, ... Sýna meira
Eignamiðlun kynnir:Rúmgóð og björt 123,1 fermetra fjölskylduíbúð í enda hússins, rúmgóð og björt stofa, þrjú svefnherbergi innan íbúðar og eitt rúmgott unglingaherbergi með aðgangi að salerni á jarðhæð. Vel hannað hús eftir Kjartan Sveinsson. Geymsla á jarðhæð. Stutt í leikskóla, skóla og þjónustu, Fylkisvöllur, Árbæjarlaug og Elliðaárdalurinn skammt undan.Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða sem einnig sýnir eignina. Til að undirbúa kauptilboð þá er skynsamlegt að fá söluverðmat á þinni eign, þér að kostnaðarlausu. Hringið og ræðið málið í 663-2508.Íbúðin, sem er í enda á fyrstu hæð hússins, er skráð samtals 123,1 fermetrar, þar sem íbúð á hæð er 104,3 fermetrar, íbúðarherbergi á jarðhæð er 13,6 fermetrar og geymsla á jarðhæð er 5,2 fermetrar. Stigagangur er mjög snyrtilegur og vel um genginn.Komið er inn í skála eða hol íbúðarinnar, þar sem svefnherbergisgangur er á vinstri hönd, eldhús beint framundan og stofur til hægri. Stofur eru stórar og bjartar, með stórum gluggum til suðurs og einum glugga til austurs á enda hússins. Svalir til suðurs frá stofu. Í skála er fataskápur og flísar á gólfi við útidyr íbúðarinnar.Eldhús er rúmgott með glugga í enda, borðkrók undir glugga og viðarlitaðri innréttingu til beggja hliða. Pláss fyrir uppþvottavél og þvottavél í innréttingunni.Á lokuðum svefnherbergisgangi eru tvö barnaherbergi, baðherbergi og hjónaherbergi. Barnaherbergin eru ágætlega rúmgóð, sérstaklega annað þeirra þar sem á upphaflegri teikningu er gert ráð fyrir tveimur rúmum. Netlagnir eru til staðar í báðum barnaherbergjum. Í hjónaherbergi er fataskápur á heilum vegg og svalir til austurs. Baðherbergi er með flísum á gólfi, baðkari og hvítri innréttingu.Á jarðhæð er sem fyrr segir rúmgott unglingaherbergi, en á sér gangi eru nokkur slík herbergi með aðgangi að salerni sem er í eigu sameignarinnar. Búið er að leggja netlagnir úr íbúðinni og niður í herbergið. Stór gluggi sem snýr til austurs er í herberginu.Á árinu 2006 var rafmagn endurnýjað í íbúðinni, skipt var um gler og sett hljóðeinangrandi gler með filmu milli glerja, parket í íbúðinni var endurnýjað og skipt um parket í íbúðarherbergi í kjallara, flísar í forstofurými voru endurnýjaðar og skipt var um allar hurðir í íbúðinni.Á jarðhæð er sameiginleg hjóla og vagnageymsla, mjög vel um gengið sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi, ásamt sérgeymslu íbðúarinnar.Húsið er klætt að utan með steni-klæðningu og hefur að því er séð verður fengið ágætt viðhald. Gluggar voru málaðir 2008 og 2016, skipt var um þak 2017, gluggar á austurgafli viðgerðir með epoxy 2018, dren sett í kringum blokkina 2019 og skipt um rafmagnstöflu í stigaganginum 2020.Vel hönnuð og rúmgóð fjölskylduíbúð, vel staðsett. Sérlega áhugaverð eign.Kostnaður kaupanda af kaupum:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.500 af hverju skjali.4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupandendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.isÁbyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. Eignamiðlun Grensásvegi 11 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögumHeimasíða EignamiðlunarEignamiðlun á Facebook