Opið hús fellur niður þar sem eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun.Gimli fasteignasala kynnir: Bjarta og fallega hæð í einstaklega flottu húsi við Hrannarstíg í 101 Reykjavík. Eignin hefur tvö rúmgóð svefnherbergi, bjarta og rúmgóða stofu og borðstofu, opið eldhús, baðherbergi sem gerir ráð fy... Sýna meira
Opið hús fellur niður þar sem eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun.Gimli fasteignasala kynnir: Bjarta og fallega hæð í einstaklega flottu húsi við Hrannarstíg í 101 Reykjavík. Eignin hefur tvö rúmgóð svefnherbergi, bjarta og rúmgóða stofu og borðstofu, opið eldhús, baðherbergi sem gerir ráð fyrir þvottavél/þurrkara og risloft með sérinngangi af stigapalli. Risloftið er skráð 12 fm en gólfflötur er mun stærri. Möguleiki á stækkun í risi. Framtíðar leigutekjur.Eignin hefur verið mikið endurnýjuð. Að innan er búið að setja gólfhita, skipta um rafmagnstöflu og draga í, nýlegt Eikarplankaparket, nýlegar innréttingar.Að utan er búið að fara í steypuviðgerðir og mála hús.Forstofa: Flísalögð með skápum. Hol: Flísalagt með fallegum náttúruflísum.Eldhús: Opið með granítborðplötum, vönduðum tækjum og flísalagt með fallegum náttúruflísum.Stofa og borðstofa: Björt og rúmgóð stofa og borðstofa. Parketlögð með fallegum gluggum.Baðherbergi: Flísalagt með fallegum náttúruflísum, granítborðplötu, handlaug, baðkari með sturtuaðstöðu ásamt innbyggðum blöndunartækjum og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Svefnherbergi: Bæði eru parketlögð annað með rúmgóðum fataskáp.Glæsilegt steinhús byggt árið 1928 með mikilli lofthæð (290cm). Eignin hefur stóra franska glugga sem gera íbúðina bæði bjarta og einstaka. Miklir möguleikar í risi. Falleg og glæsileg íbúð á mjög eftirsóttum stað í vesturbænum þar sem stutt er í allar þjónustur. Skóla, kaffhús, sund og í göngufæri frá miðbæ Reykjavíkur.Nýtt gler fylgir með íbúðinni í hluta af gluggum. Útigeymsla í kjallaraNánari upplýsingar veitir Daði Þór Jónsson, Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 770 0111 milli kl. 9:00 og 17:00 alla virka daga, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnar því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.500,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.