Jón Óskar Karlsson, löggiltur fasteignasali (s. 693 9258) og Landmark fasteignamiðlun kynna:Vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð á 4. hæð við Holtsgötu 22 í Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, tvö góð svefnherbergi, skrifstofu/barnaherbergi, baðherbergi og geymslu.Nánari... Sýna meira
Jón Óskar Karlsson, löggiltur fasteignasali (s. 693 9258) og Landmark fasteignamiðlun kynna:Vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð á 4. hæð við Holtsgötu 22 í Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, tvö góð svefnherbergi, skrifstofu/barnaherbergi, baðherbergi og geymslu.Nánari lýsing:Forstofa: Rúmgóð forstofa / hol með fataskáp, flísar á gólfi.Stofa/borðstofa: Björt stofa með stórum gluggum, parket á gólfi.Eldhús: Rúmgott eldhús með HTH innréttingu, góðu skúffu- og skápaplássi, efri skápar og flísar milli innréttinga. Helluborð, gufugleypir, bakaraofn og rými fyrir uppþvottavél.Svefnherbergi 1: Rúmgott herbergi með fataskápum, útgengt út á svalir, parket á gólfi.Svefnherbergi 2: Gott herbergi með fataskápum, parket á gólfi.Skrifstofa/barnaherbergi: Lítið herbergi með fataskápum, parket á gólfi.Baðherbergi: Flísalagt gólf og veggir að hluta, sturta, baðkar, upphengt klósett og innrétting með handlaug. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara til staðar.Geymsla: Eigninni tilheyrir góð geymsla í kjallara hússins.Þvottahús: Snyrtilegt sameiginlegt þvottahús í húsinu.Húsið sjálft er fjögurra hæða hús á eignarlóð með einni íbúð á hverri hæð en húsið sjálft hefur fengið gott viðhald.2016 - Skipt um alla glugga og svalarhurðir á austurhlið.2017 - Frárennslislagnir endurnýjaðar að hluta.2020 - Drenlögn lögð meðfram austurhlið hússins.2021 - Gluggar málaðir og skipt um þakrennur á vesturhlið hússins.2022 - Múrviðgerðir og steining á allri austurhlið hússins. Skipt um þakrennur á austurhlið hússins. Viðgerðir og málun á svölum ásamt gluggaopum og vatnsbrettum. Þak var ryðvarið og málað ásamt því að gert var við skorstein.2023 - Skipt um lagnir að hluta í kjallara.Allar nánari upplýsingar veitir:Jón Óskar Karlsson, löggiltur fasteignasali, í síma 693 9258 eða Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunarFáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA