Íbúð
Tvíbýli á tveimur pöllum. Neðri pallur með forstofu, 3 svefnherbergjum, baðherbergi og geymslu (ekki alls staðar full lofthæð). Efri pallur með opnu eldhúsi og stofu/borðstofu sem tengist verönd og garði. Sameiginlegt þvottahús á efri palli. Sérinngangur að neðri hæð.
Stofa
Stofa/borðstofa myndar eitt opið bjart rými með nýju floti á gólfi. Notuð sem sjónvarpshol og borðstofa. Útgengt á hellulagða verönd og í suðuráttar garðinn.
Eldhús
Endurnýjað eldhús með hvítri innréttingu, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, góðu skápaplássi og eyju með eldavél og skúffum. Nýlegt flot á gólfi.
Svefnherbergi
Hjónaherbergi rúmgott með skáp og parket á gólfi. Svefnherbergi I bjart með tveimur gluggum og parket á gólfi. Svefnherbergi II (upphaflega geymsla) gott barnaherbergi með tveimur gluggum og parketi á gólfi.
Baðherbergi
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með baðkari með sturtu, handklæðaofni og ágætri innréttingu.
Þvottahús
Rúmgott sameiginlegt þvottahús á efra palli.
Geymsla
Gott nett geymslurými á neðri palli. Forstofa með geymslurými.
Bílskúr
Rúmgóður bílskúr með góðri lofthæð og hluta til með millilofti.
Garður
Stór, skjólgóður og vel hirtur garður sem snýr að mestu í suður. Með matjurtagarði, lítill kaldur geymsluskúr, róla, sandkassa, falleg blómabeð og berjalönd (jarðarber, hindber, sólber, rifsber, mynta). Gott samkomulag um skiptingu garðsins.
Svalir/þak
Hellulögð verönd sem tengist stofunni/borðstofunni á efri palli.
Tæki
Innbyggður ísskápur, uppþvottavél og eldavél í eyju.
Svæði
Á besta stað á Kársnesinu, stutt í skóla, leikskóla, sundlaug, íþróttaaðstöðu og aðra þjónustu. Kársnesið rótgróið hverfi í uppbyggingu með fyrirhugaðri góðri tengingu við miðbæ Reykjavíkur. Nýr barna- og leikskóli opnaður í Holtagerði haustið 2025. Nálægt útivistarsvæði.