Íbúð
Raðhús með extra lofthæð, 183,1 fermetrar á einni hæð, byggt 2013. Flísalögð forstofa, þvotthús, baðherbergi, hjónaherbergi, tvö barnaherbergi, sjónvarpshol, eldhús og stofa. Innangengt í bílskúr.
Stofa
Parket og flísar á gólfum, góðir suðurgluggar.
Eldhús
Falleg hvít innrétting með eyju og steinborðplötum, borðkrókur, innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Svefnherbergi
Hjónaherbergi með fataherbergi, tvö barnaherbergi með fataskápum eða fatahengi, parket á gólfum.
Baðherbergi
Flísalagt með fallegri innréttingu við handlaug, stór skápur, vegghengt salerni, bæði baðkar og góð sturta.
Þvottahús
Flísalagt með góðri innréttingu og þvottavél og þurkara í vinnuhæð.
Geymsla
Milliloft í bílskúr með töluverðu óskráðu rými sem býður upp á möguleika á tveimur herbergjum.
Bílskúr
38 fermetra flísalagður bílskúr með 18,3 fermetra millilofti og stórt hellulagt bílastæði með snjóbræðslu fyrir framan.
Garður
Mjög snyrtileg lóð með góðum sólpalli.
Önnur herbergi
Sjónvarpshol með parketi eða flísum.
Tæki
Innbyggður ísskápur, uppþvottavél, þvottavél og þurkari.
Efni
Parket og flísar á gólfum, steinborðplötur í eldhúsi.