Eignamiðlun kynnir:
Vel skipulagt parhús á einni hæð á gróinni lóð móti suðri innst í botnlanga í Vogahverfinu. Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni. Góð aðkoma er að húsinu. Bílskúr með óskráðu millilofti. Sólskáli og heitur pottur. Frábært og fjölskylduvænt hús á eftirsóttum stað. *** Sækja söluyfirlit ***Bókið skoðun. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími
899-8815, kari@eignamidlun.is
Um er að ræða nánar tiltekið Hlunnavog 13, 104 Reykjavík, F2020793. 5-6 herbergja parhús á einni hæð með bílskúr. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 182,8 fm, þar af er íbúðarrými 161,2 fm, bílskúr er skráður 21,6 fm. Íbúðarrými hússins skiptist í anddyri, snyrtingu, húsbónda/forstofuherbergi, skála, eldhús, borðstofu og stofu. Stór sólstofa (24 fm) með gólfhita og kamínu út frá stofu. Á herbergjagangi eru nú tvö svefnherbergi (áður þrjú ) og baðherbergi. Sérþvottahús og búr inn af eldhúsi með útgengi út í garð. Bílskúr er snyrtilegur, rúmgóður með óskráðu millilofti, góðri innkeyrsluhurð (með gönguhurð) og mörgum gluggum. Fasteignamat 2026 = 136.400.000 kr.
Anddyri er með fataskápum. Flísar á gólfi.
Snyrting er inn af anddyri. Salerni, handlaug. Flísar á gólfi og veggjum. Opnanlegur gluggi.
Eldhús er lokað, rúmgott með fallegri viðarinnréttingu með góðu vinnu- og skápaplássi og góðum borðkrók. Vönduð eldhústæki frá Bosch, Siemens og Asko. Flísar á gólfi.
Þvottahús og búr eru inn af eldhúsi. Ikea innrétting í þvottahúsi með pláss fyrir þvottavél og þurrkara, opnanlegur gluggi. Útgengt er úr búri út á timburpall.
Borðstofa er með tengingu við eldhús og stofu. Stór rennihurð og útgengt út á timburpall.
Stofa er björt og með stórum gluggum.
Sólstofa er út frá stofu. Mjög gott rými (24 fm) með gólfhita og kamínu. Tveir útgangar út á flísalagða verönd eru úr sólstofunni, annar beint út að heita pottinum.
Skáli er í hjarta hússins og tengir saman rými hússins. Flísar á gólfi.
Herbergjagangur, parket á gólfi.
Herbergi 1 er stórt með tveimur gluggum, var áður tvö minni herbergi og hæglega væri hægt að skipta því aftur upp í tvö minni. Parket á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott (6,9 fm) með snyrtilegri eikarinnréttingu frá Brúnás með hvítum efri skápum og handlaug. Stór sturtuklefi með innbyggðum blöndunartækjum. Upphengt salerni. Flísar í hólf og gólf. Opnanlegur gluggi. Handklæðaofn. Gólfhiti.
Herbergi 2 er hjónaherbergi er rúmgott með góðum upprunalegum fataskápum með rennihurðum. Parket á gólfi.
Herbergi 3 er gott forstofuherbergi, með skápum. Parket á gólfi.
Bílskúr er snyrtilegur, 21,6 fm og með mörgum gluggum. Innkeyrsluhurð (með inngönguhurð). Heitt og kalt vatn. Flísar á gólfi. Góð steypt innkeyrsla er fyrir framan bílskúrinn með pláss fyrir 1-2 bíla. Snjóbræðsla er í innkeyrslunni og í hellulögðum göngustíg en ekki í útitröppum.
Geymsla er á óskráðu millilofti yfir bílskúr.
Lóðin er 588,3 fm og gróin með tveimur timburveröndum, góðri grasflöt og nokkrum háum trjám. Góð staðsetning innst í botnlanga. Kyrrlátt og rólegt umhverfi.
Yfirlit yfir helstu framkvæmdir og endurbætur á liðnum árum að sögn eiganda:
Baðherbergi var endurnýjað 2012
Bílskúr flísalagður og milliloft smíðað 2012
Gestasnyrting, skáli og eldhús flísalagt 2012
Frárennslislagnir voru yfirfarnar 2012
Húsið var múrviðgert og málað 2019
Nýr pallur 2020/2021
Heitur pottur frá NormX 2021
Þak var yfirfarið 2022
Skipt var um glugga í öllu húsinu nema við inngangshurð þar sem þó var skipt um gler 2022
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook