Fasteignamiðlun kynnir eignina Hlíðarvegur 42, 625 Ólafsfjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 215-4069 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Hlíðarvegur 42 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 215-4069, birt stærð 248.2 fm.
Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.Um er að ræða einbýlishús í hæðum Ólafsfjarðar með frábæru útsýni og suðurpalli. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, samliggjandi stofu og borðstofu, 6 svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, þvottahúsi, búri og geymslu.
Efri hæð samanstendur af forstofu, eldhúsi, stofu, borðstofu, þremur svefnherbergjum og baðherbergi.
Neðri hæð samanstendur af forstofu, þremur svefnherbergjum, búri, geymslu, þvottahúsi og baðherbergi.
Eignin hefur verið endurnýjuð að hluta en búið er að:-endurnýja þak
-mála og pússa glugga, þakskyggni og grindverk á svölum
-endurnýja eldhús
-endurnýja baðherbergi
-gólfhiti settur á bæði baðherbergi og hluta af neðri hæð.
-vatnslagnir hafa verið endurnýjaðar
Anddyri: er á báðum hæðum með flísum á gólfi og ágætis fatahengi.
Eldhús: var endurnýjað fyrir nokkrum árum með gráum innréttingum, hvítri borðplötu og flísum á gólfi. Mikið útsýni er úr eldhúsi.
Stofa: liggur saman með borðstofu í opnu rými með útgang út á svalir. Mikið gluggarými er í stofu með útsýni yfir fjörðinn.
Svefnherbergi: eru í heildina 6 eða þrjú á efri hæð og þrjú á neðri hæð.
Baðherbergi: eru tvö í eigninni á sitthvorri hæðinni og hafa verið endurnýjuð með hitalögnum í gólfi.
Þvottahús: er á neðri hæð með innréttingum og flísum á gólfi. Tveir opnanlegir gluggar eru í þvottahúsi.
Búr: er á neðri hæð með hillum og lökkuðu gólfi.
Geymsla: er með lökkuðu gólfi og hillum. Inn af geymslu er stigaop sem er búið að loka.
Bílskúr: er með rafdrifinni hurð og lökkuðu gólfi. Aðgangur er að kaldri geymslu sem er undir bílskúr. Einnig er aðgangur að geymslunni neðan við hús.
Pallur: timburpallur er sunnan við eign með skjólveggjum.
Garður: er grasilagður að hluta með steyptri stétt að snúrustaur og aðgangi að geymslurými.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.