LANDMARK Fasteignamiðlun og Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali (s:694-4112 / freyja@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:Vel skipulagt 5 herbergja einbýlishús á einni hæð með bílskúr við Hlíðarstræti 5 í Bolungarvík.
**Góð staðsetning í bænum **4 svefnherbergi **Afgirt verönd fyrir framan hús og stór gróinn garður **Getur verið afhent við kaupsamningEignin er skráð 157,5 fm skv HMS og skiptist í íbúð 125,5 fm og bílskúr 32 fm.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa með fatahengi og skáp, flísar á gólfi.
Herbergisgangur með parket á gólfi.
Stofa er björt og er stórt op á milli stofu og eldhúss, parket á gólfi. Afgirt timburverönd er fyrir framan stofu.
Eldhús er með viðarinnréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð, borðkrókur og parket á gólfi.
Fjögur svefnherbergi með parket á gólfi, skápar í þremur þeirra.
Baðherbergi er flísalagt með nýlegri walk in stog opnanlegum glugga.
Þvottahús er innaf eldhúsi, rúmgott með hillum og skáp.
Útgengt út á baklóð úr þvottahúsi
.Geymsla er innaf þvottahúsi með dúk á gólfi og hillum, opnanlegur gluggi.
Bílskúr er með vatn og rafmagn, geymsla stúkuð af innst í bílskúr.
Kjallari undir þvottahúsinu, gengið er niður tröppur á hlið hússins en þar er rafmagnsinntakið, rafmagnstaflan og lagnir.
Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða freyja@landmark.isSkoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat