Sunna Fasteignasala ehf. og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali s. 777-2882 kynna nýja eign í einkasölu.Hlíðarhjalli 10, íbúð merkt 01-02 er skráð 80,1 fm. skv. fasteignaskrá HMS, vel skipulögð íbúð með sérinngangi og verönd mót suðri á þessum vinsæla stað í suðurhlíðum Kópavogs.Um er að ræða 3ja ... Sýna meira
Sunna Fasteignasala ehf. og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali s. 777-2882 kynna nýja eign í einkasölu.Hlíðarhjalli 10, íbúð merkt 01-02 er skráð 80,1 fm. skv. fasteignaskrá HMS, vel skipulögð íbúð með sérinngangi og verönd mót suðri á þessum vinsæla stað í suðurhlíðum Kópavogs.Um er að ræða 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi sem byggt var árið 1988. Hlíðarhjalli er staðsettur í í suðurhlíðum Kópavogs sem er afar miðsvæðis, stutt er í alla verslun og þjónustu, heilsugæslu, skóla, leikskóla og vinsælt útivistarsvæði í Kópavogsdalnum.Nánari lýsing: Komið er inn um sérinngang frá vesturhlið hússins inn í flísalagða forstofu með fataskáp.Opið alrými rúmar uppgert eldhús og stofu. Eldhús er með hvítri innréttingu, ofn í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél og gott bekkpláss, hluti innréttingar, áföst eyja sameinar eldhús og borðstofurými.Stofan er björt með góðum gluggum mót suðri, gengið er út á sér afnotareit, afgirtan timburpall, sem einnig snýr mót suðri.Svefnherbergi eru tvö, barnaherbergi og hjónaherbergi með fataskáp með rennihurðum.Á gangi fyrir framan baðherbergi er góður skápur með hillum.Baðherbergi var gert upp árið 2015, flísalagt í hólf og gólf með góðum sturtuklefa, upphengdu salerni, innréttingu og sérsmíðuðum skáp fyrir þvottavél og aðstöðu til þvotta.Sér geymsla íbúðarinnar er innan íbúðarinnar, flísalögð með glugga með opnanlegu fagi.Sameign hússins er til fyrirmyndar, snyrtilegir gangar og sameiginleg svæði.Húsið var málað og múrviðgert sumarið 2019, þá var skipt um gler í gluggum þessarar íbúðar og gluggi svefnherbergis lagaður/opnanlegt fag.Aðkoma að húsinu er til fyrirmyndar.Allar upplýsingar um eignina gefur Þóra Birgisdóttir í s. 777-2882 eða Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.