*Aukaíbúð*-------*Endaraðhús*------*Frábær staðsetning*-----*Efst í botnlanga*------*Útsýni*-------*Gróinn garður*Trausti Fasteignasala og Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu virkilega fallegt og vel skipulagt 4-5 herbergja endaraðhús með aukaíbúð við Hlíðarbyggð 38 í Garðabæ. Húsið er frábærlega staðsett efst í botnlanga í miðjum Garðabæ þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Birt stærð eignar samkvæmt HMS er 205,3fm og þar af er bílskúr 61,1fm. Nánari lýsing:Anddyri er með fataskáp og flísum á gólfi.
Hol er með fataskáp og þaðan er gengið út á s-vestur verönd á skjólgóðan pall.
Eldhús er með ljósri innréttingu og góðum borðkrók. Úr eldhúsi er mikið og gott útsýni til norðurs. Flísar á gólfum.
Inn af eldhúsi er
búr og
þvottahús (endurnýjað 2013), sem er bjart og smekklega innréttað. Góð vinnuaðstaða. Flísar á gólfum.
Stofan er rúmgóð og björt með aukinni lofthæð. Gluggar eru á þrjá vegu sem gefa því stofunni aukna birtu og afbragðs útsýni. Rýmið rúmar vel
borðstofu og
setustofu. Parket á gólfum
Á
svefnherbergisgangi eru 3 herbergi, tvö barnaherbergi (voru áður þrjú) og hjónaherbergi með eldri skápum með rennihurðum. Parket á gólfum.
Baðherbergið var endurnýjað 2014 á vandaðan máta með hlöðnum sturtuklefa, baðkari, upphengdu salerni, handklæðaofni og hita í gólfi. Flísar á gólfum.
Bílskúrinn er skráður 61,1 fm. Honum hefur verið skipt upp og er nú sér tæplega 30 fm.
stúdíó-íbúð nýlega innréttuð. Sér inngangur, vel innréttuð snyrting og sturtuherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Í alrými er nett eldhúsinnrétting. Bílskúrinn sjálfur er með máluð gólf, heitu og köldu vatni og glugga með opnanlegu fagi.
Annað:Eignin hefur almennt fengið gott viðhald
Garðurinn er gróinn og fallegur með göngustígum, lýsingu og skjólgóðum palli
Upphitað bílaplan er fyrir framan bílskúrinn
Næg bílastæði til viðbótar fyrir framan húsið
Rafmagn var yfirfarið, tenglar og rofar endunýjaðir með dimmerum á fyrir ca. 12 árum
Vatnslagnir endurnýjaðar að hluta
Þak málað 2020
Pallur stækkaður 2020 og gert ráð fyrir heitum pott
Tvö barnaherbergi sameinuð 2025
Múrviðgerðir á veggjum að utan og málað 2019
Steniklæðning er á húsinu sem er viðhaldslétt
Hér er um að ræða frábært fjölskylduhús með aukabúð góðum stað í Garðabæ þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.isForsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.