RE/MAX kynnir í einkasölu: Mjög góð þriggja herbergja 84,0 fm. íbúð á 2. hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi við Hjaltabakka 14, Reykjavík. Húsið hefur fengið gott viðhald og nýlokið miklum framkvæmdum á ytra byrði hússins. Íbúðin sjálf er 76,9 fm. og skiptist í forstofu, stofu- og borðstofu með útgeng... Sýna meira
RE/MAX kynnir í einkasölu: Mjög góð þriggja herbergja 84,0 fm. íbúð á 2. hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi við Hjaltabakka 14, Reykjavík. Húsið hefur fengið gott viðhald og nýlokið miklum framkvæmdum á ytra byrði hússins. Íbúðin sjálf er 76,9 fm. og skiptist í forstofu, stofu- og borðstofu með útgengt út á svalir og opið eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi. Sérgeymsla 7,1 fm. er staðsett í sameign á jarðhæð ásamt sameiginlegri hjólageymslu og þvottaherbergi. Björt og vel skipulögð eign, staðsett í góðu og fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í grunnskóla, leikskóla, matvörubúð og alla helstu þjónustu. Kíktu í heimsókn með því að smella hérFáðu söluyfirlit með því að smella hérNánari lýsing: Forstofa er með góðum fataskápum. Parket á gólfum.Stofa- og borðstofa er rúmgóð og björt með útgengt út á skjólgóðar suður svalir.Eldhús opið, með fallegri eldri viðar-innréttingu með góðu skápa- og borðplássi. Flísar á milli skápa, helluborð, bökunarofn og vifta. Korkur á gólfum.Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með fallegri vaskinnréttingu og góðum skápum, upphengdu salerni, handklæðaofni og sturtu.Svefnherbergi eru tvö, mjög rúmgóð með góðum fataskápum, parket á gólfum.Sérgeymsla 7,1 fm. er staðsett í sameign á jarðhæð ásamt hjóla- og vagnageymslu og sameiginlegu þvottahúsi. Garður er sameiginlegur, mjög snyrtilegur og með leikvelli.Nýlegar framkvæmdir: (sjá einnig fundargerðir og yfirlýsingu húsfélags).2020 stigagangur málaður, flísar lagfærðar og mottur endurnýjaðar. 2016-2019 Múrskemmdir lagaðar, hefðbundið viðhald, húsið málað, skipt um glugga og gler, ný svalahurð. Endurnýjað tréverk að utan. Þakjárn ryðvarið og málað, þakkantur lagaður og endurmálaður, þakrennur endurnýjaðar.Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali í síma 867-1231 og Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 mvsk.