Betri stofan kynnir: Glæsilegt 283 fm einbýli á tveimur hæðum við Helgadalsveg 8 í Mosfellsdal. Eignin skiptist skv þjóðskrá í 222,3 fm íbúðarrými og 60,7 fm bílskúr, en bílskúrnum var breytt á byggingarstigi og er því íbúðarrými í dag. Að auki eru u.þ.b. 40 fm. undir súð á efri hæð sem nýtast vel ... Sýna meira
Betri stofan kynnir: Glæsilegt 283 fm einbýli á tveimur hæðum við Helgadalsveg 8 í Mosfellsdal. Eignin skiptist skv þjóðskrá í 222,3 fm íbúðarrými og 60,7 fm bílskúr, en bílskúrnum var breytt á byggingarstigi og er því íbúðarrými í dag. Að auki eru u.þ.b. 40 fm. undir súð á efri hæð sem nýtast vel og því heildarfermetrar um 320. Því til viðbótar er búið að klæða að utan með viðarklæðningu tvo 40 feta gáma með hita sem geymslur og setja inn í mön á lóðinni. Eignin stendur á tæplega hektara eignarlandi. Fyrir utan núverandi hús má byggja gestahúss allt að 150m2 og annað húsnæði, t.d. hesthús, reiðskemmu, gróðurhús, iðnaðarhús eða hótel allt að 500 fm.” Hvergi hefur verið til sparað við efnisval eignarinnar. Sérsmíðaðar innréttingar frá Tréborg hannaðar af Björgvini Snæbjörnssyni hjá Apparat. Lýsingarhönnun og ljós að innan og utan hönnuð af Lumex. Gólfhiti er í húsinu með hitastýringarkerfi frá Lumex. Vandað eikarparket frá Ebson og 120x120 flísar í forstofu, tveimur herbergjum og þvottahúsi frá Ebson, veggflísar á baði 3mx140 frá Vídd og gólfflísar frá Flísabúðinni. Uppþvottavél og gaseldavél af tegundinni Smeg frá Eirvík. Eignin stendur á tæplega hektara eignarlandi og samkvæmt gildandi deiliskipulagi er samþykkt fyrir byggingum.Nánari lýsing: Neðri hæð: Neðri hæðin skiptist í tvær einingar með gangi á milli. Gengið er inní flísalagt anddyri. Frá andyrrinu er gengið í suðurhlutann og inn í stofu/borðstofu og eldhúsrými. Stofan er parketlögð og skiptist í stóra borðstofu, hol og setustofu. Frá stofunni er útgengt á stóran harðviðarpall með grillaðstöðu og heitum og köldum pottum og útisturtu. Eldhúsið er parkelagt með stórri eldunareyju með granítborðplötum og sérsmíðaðri innréttingu frá Tréborg. Baðherbergið á neðri hæðinni er flísalagt með upphengdu salerni og "walk in sturtu". Í norðurhluta hússins eru tvö stór svefnherbergi ásamt stóru þvottahúsi með góðum skápum og hillum. Útgengt er á pallinn út á potta svæðið úr svefnherbergi sem snýr í suðaustur. Efri hæð: Gengið er upp fallegan stiga frá andyrrinu uppá efri hæðina sem er parketlögð fyrir utan baðherbergið, hæðin samanstendur af hjónaherbergi, barnaherbergi, sjónvarpsstofu og stóru baðherbergi með frístandandi baðkari og "walk inn " sturtu. Frá sjónvarpsstofunni er útgengt á rúmgóðar svalir sem snúa í suður.Vönduð eign á eignarlandi á vinsælum stað í Mosfellsdalnum þar sem stutt er í útivist, góðar reiðleiðir og golfiðkun. Staðsetningin er einstök rétt við Helgadalsveg, aðeins 5 mínútum frá Mosfellsbæ og 20 mínútúm frá miðbæ Reykjavíkur. Sveitakyrrð, dýralíf, stórar lóðir og skemmtilegar gönguleiðir í allar áttir. Fjallasýn til allra átta og dalurinn opinn langt til suðurs.Nánari upplýsingar veita:Gunnar S. Jónsson , sími 8995856, , löggiltur fasteignasali.Þórir Skarphéðinsson, sími 844 9591 - , lögmaður og löggiltur fasteignasali.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.