Háborg fasteignasala og Kristín Rós Magnadóttir lögg. fasteignasali kynna í einkasölu einbýlishúsið við Heiðmörk 15 í Hveragerði.
Um er að ræða mikið endurnýjað einbýlishús í grónu hverfi miðsvæðis í Hveragerði. Húsið er skráð 103,8 fm og skiptist í íbúð og um 24 fm skúr/geymslu. Íbúðin skiptist í
anddyri,
alrými með
eldhúsi,
borðstofu og
stofu, tvö
svefnherbergi og
baðherbergi.
Gengið er inn í anddyri, þar er fataskápur.
Alrými er bjart og fallegt, það samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu.
Í eldhúsi er hvít, rúmgóð innrétting frá Ikea.
Svefnherbergi eru tvö, bæði með fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, þar er hvít innrétting með speglaskáp, sturta og þvottaaðstaða.
Á öllum gólfum er parket nema á baðherbergi, þar eru flísar.
Eignin er samtals 103,8 fm, þar af er geymsla/skúr um 24 fm.
Garður er gróinn og skjólsæll, hiti er í gangstétt út á bílastæði, við bílastæði er hleðslustöð.
Húsið hefur verið mikið endurnýjað á síðustu árum.
Skipt var um þak árið 2020.
Allar innréttingar, skápar, gólfefni og hurðir voru endurnýjaðar árið 2023.
2023 var einnig skipt um gler í öllum gluggum nema á baðherbergi, gólfhiti var lagður, lagnir og rafmagn yfirfarið og endurnýjað að hluta.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Rós Magnadóttir, lögg. fasteignasali í síma 860-2078 eða á kristin@haborg.is.