Fasteignasalan Garður
Baldur fasteignasali – Sími 450-0000 kynnir: Í einkasölu einstaklega rúmgott og vel skipulagt
einbýlishús á einni hæð með innbyggðum
bílskúr á friðsælum og góðum stað að Hvallveigartröð 5 í Reykholti, Borgarbyggð. Eignin er skráð samtals
195,2 fermetrar, þar af er íbúðarhlutinn 162,6 fermetrar og bílskúr 32,6 fermetrar samkvæmt Þjóðskrá Íslands.
Nánari upplýsingar veitir:
Halldór Sveinbjörnsson - löggiltur fasteignasali -
halldor@fastgardur.is - sími: 693-2916 Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali -
baldur@fastgardur.isEignin skiptist í forstofu, gestasnyrtingu,
fjögur svefnherbergi, hol/sjónvarpsrými, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, þvottahús og innbyggðan bílskúr. Frá stofu og baðherbergi er gengið út á skjólgóða verönd á baklóð þar sem heitur pottur er staðsettur. Um er að ræða mjög fallegt fjölskylduhús með góðri aðstöðu og notalegri aðkomu.
Nánari lýsing:Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur. Gesta salerni.
Gestasnyrting: Flísalögð gólf og veggir. Upphengt salerni. Aðgengilegt úr forstofu.
Eldhús: Parket á gólfi. Ljós viðarinnrétting og flísar milli efri og neðri skápa. Ofn, helluborð, háfur og uppþvottavél. Eldhúsið er opið að holi og býður upp á góða vinnuaðstöðu.
Stofa/borðstofa: Rúmgott og bjart rými með parketi á gólfi og glugga í þrjár áttir. Útgengt er út á pall sem snýr í suður og er með sjólvegg.
Fjögur svefnherbergi: Öll með parketi á gólfum. Þrjú herbergjanna eru með fataskápum.
Baðherbergi: Útgengt er út á verönd með skjólvegg þar sem
heitur pottur er staðsettur. Rúmgott rými. Flísalagt í hólf og gólf. Upphengt salerni. Ljós viðarinnrétting og flísalögð sturta með gleri.
Þvottahús: Flísar á gólfi, hvít innrétting og skolvaskur. Innangengt frá þvottahúsi í bílskúr.
Bílskúr: Flísalagður, með hita, rafmagni og vatni.
Annað:Húsið stendur efst í rólegu hverfi ofan við Reykholtskirkju. Um er að ræða timburhús á steyptum sökkli, byggt árið 2008. Varmaskiptir í húsinu. Hallogenlýsing. Klætt með liggjandi báru. Hellulögð innkeyrsla.
Um er að ræða rúmgóða og vel skipulagt hús og skjólsælt útisvæði – kjörið fyrir fjölskyldufólk sem vill rólegt og fjölskylduvænt umhverfi í náttúrulegu og fallegu umhverfi. Skóli er í aðeins 6 kílómetra fjarlægð.
Nánari upplýsingar veitir:
Halldór Sveinbjörnsson - löggiltur fasteignasali -
halldor@fastgardur.is - sími: 693-2916 Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali -
baldur@fastgardur.isNetverðmat: Smelltu hér til að sjá hvers virði eignin þín er.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður