TORG FASTEIGNASALA KYNNIR Í EINKASÖLU: Vönduð 142,6 fm, fjögurra herbergja íbúð á fyrstu hæð í þessu glæsilega húsi við Hallgerðargötu 5, við Kirkjusand í Reykjavík. Íbúðin skiptist í anddyrisgang, hol, hjónasvítu með fataherbergi og baðherbergi, tvö barnaherbergi, alrými með stofu og eldhúsi og tve... Sýna meira
TORG FASTEIGNASALA KYNNIR Í EINKASÖLU: Vönduð 142,6 fm, fjögurra herbergja íbúð á fyrstu hæð í þessu glæsilega húsi við Hallgerðargötu 5, við Kirkjusand í Reykjavík. Íbúðin skiptist í anddyrisgang, hol, hjónasvítu með fataherbergi og baðherbergi, tvö barnaherbergi, alrými með stofu og eldhúsi og tvennar svalir. Gólfhiti í íbúð. Íbúðin er stutt frá miðborg Reykjavíkur og í mikilli nálægð við Laugardalinn.Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða .Nánari lýsing: Íbúðin er skráð 131,7 fm og geymsla 10,9 fm, samtala 142,6 fm. Svalir 15,2 fm.Komið er inn í anddyrisgang sem tengist holi þar sem gengið er inn í hjónasvítuna og annað barnaherbergið. Hjónasvítan er með opnu fataherbergi og baðherbergi með viðarlitaðri innréttingu með stein á borði, speglaskáp, flísalagt í hólf og gólf. Baðkar, vegghengt salerni og handlaug í borði. Útgengt er á svalir úr hjónasvítu. Barnaherbergi er með skápum.Gengið er úr holi og inn á gang sem leiðir inn í alrými. Baðherbergi er á ganginum, baðherbergi með viðarlitaðri innréttingu með stein á borði, speglaskáp, flísalagt í hólf og gólf. sturta með skilrúm úr gleri, vegghengt salerni og handlaug í borði. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.Komið er inn í opið alrými með eldhúsi og stofu. Eldhús er með viðarlitaðri innréttingu, eyju með góðu vinnuplássi og stein á borði. Ofn í vinnuhæð og innbyggð uppvottavél, ísskápur og frystir.Útgengt er á tvennar svalir frá stofu, þar af aðrar með einstaklega fallegu sjávarútsýni.Parket er á allri íbúð fyrir utan votrými, þar eru flísar. Gólfhiti í öllum rýmum íbúðar.Sér geymsla og sameiginleg hjólageymsla í sameign.Sameiginlegur bílakjallari er undir öllum reitnum, þar sem unnt er að leigja bílastæði gegn rekstrargjaldi (7.500). Einnig geta íbúar fengið aðgang að fleiri bílastæðum gegn hóflegu gjaldi. Bílastæði með hleðslustöðvum fyrir rafbíla eru einnig í bílakjallara.Eignin er frábærlega staðsett, útivistargildi svæðisins er mikið og gott aðgengi er að strandlengjunni og Laugardal. Hallgerðargata tengist gömlum og rótgrónum hverfum á Teigunum og Lækjunum og þaðan er stutt í alla verslun og þjónustu auk nálægðar við Laugardalslaug, Grasagarðinn o.fl.*Málaferli eru í gangi við söluaðila vegna galla. Ekki liggur fyrir niðurstaða í því máli. - Sjá fundargerðir fyrir húsfélag.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,-. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.