Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 kynnir nýtt í sölu: Vel skipulagt 118 fm parhús á tveimur hæðum, fjögur svefnherbergi. Húsið er staðsett í rólegri botnlangagötu miðsvæði á Akranesi, í göngufæri við verslun, þjónustu og aðra nauðsynlega innviði. Eignin telur á neðri hæð forstofu, hol, rúmgóða stofu, eldhús, baðherbergi, tvö fín svefnherbergi, þvottahús / geymsla. Á efri hæð Hol og tvö svefnherbergi.
Nánari lýsing:Neðri hæð:
Komið er inn í
forstofu, án gólfefna,
hol með parketi á gólfi.
Stofa er rúmgóð með parketi á gólfi.
Eldhús með flísum á gólfi, innrétting máluð, tengi fyrir uppþvottavél.
Tvö svefnherbergi með parketi á gólfi, annað stúkað af stofurými.
Baðherbergi er flísalagt, með fínni innréttingu, sturtu og handklæðaofni, gluggi er á baðherberignu.
Þvottahús / geymsla innaf eldhúsi, stórt rými sem rúmar þvottahús og geymslu, þarfnast viðhalds og lokafrágangs, útgengt á lóð.
Efri hæð:
Stigi er teppalagður.
Hol parketlagt með þakglugga, nýtist vel sem sjónvarpshol.
Tvö fín herbergi með parketi á gólfi, hjónaherbergi stórt með glugga á gafli hússins.
Lóð er afgirt. Innkeyrsla hellulögð, lítill geymsluskúr á baklóð.
Endurbætur, húsið verið talsvert endurnýjað á síðustu árum, m.a gólfefni, ofnar og rafmagnstafla endurnýjað að hluta.
Þetta er vel skipulagt parhús með fjórum svefnherbergjum - laust til afhendingar fljótlega.
Allar upplýsingar veitir Atli S. Sigvarðsson fasteignasali í síma 899-1178 eða atli@betristofan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.