Esja Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir kynna einstaklega vel hannað og glæsilegt og nýbyggt einbýlishús í grónu og fallegu um hverfi með útsýni út á sjó skammt frá Akureyri.Hagaskógur 1 er í nýju hverfi í landi
Glæsibæjar í Hörgársveit aðeins 7 km. frá Akureyri. Húsið er skráð 249,6 fm. skv. fasteignaskrá HMS, á einni hæð, þar af er innbyggður bílskúr 45,2 fm, vel staðsett á 3.737 fm. skógivaxinni hornlóð.
Húsið er hannað með tillilti til staðsetningar og útsýnis, stórir gólfsíðir gluggar tryggja útsýni frá húsinu og gott birtuflæði inn. Nýjasta tækni og vandað efnisval einkenna hönnun og frágang á húsinu þar má nefna öflugt loftræstikerfi, KNX hússtjórnarkerfi sem nær yfir lýsingu bæði innan húss og utan, stýringu gólfhita og mögulega rafmagnsdrifnar gardínur ef eigendur kjósa. Í húsinu er aukin lofthæð, sérhannaðar innréttingar með hnotuspón prýða flest rými, vönduð eldhústæki, hljóðdempandi dúkur.
Eignin skiptist í rúmgóðar stofur, eldhús, 4 svefnherbergi, fataherbergi hjóna, tvö fullbúin baðherbergi, rúmgóðan bílskúr, geymslu, þvottahús og bakdyrainngang.
Nánari lýsing; Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðum fataskápum og innréttingu, í holinu í framhaldi af forstofunni er sérsmíðaður bekkur til að sitja á. Holið opnast annarsvegar til hægri inn í opið og glæsilegt alrými með eldhúsi, borðstofu og setustofu auk hjónasvítu, og hinsvegar til vinstri inn í herbergjaálmu með baðherbergi hinsvegar.
Glæsilegar stofur með 3,3 metra lofthæð ganga í gegnum húsið með gluggum bæði til austurs og vesturs í góðu flæði, glæsilegur innbyggður arinn með gleri á 3já vegu, skiptir rýminu upp að hluta og skapar hlýlega stemmningu bæði inn í setustofu og borðstofu.
Eldhúsið er sérlega glæsilegt með fallegri viðarklæddri innréttingu með miklu hirsluplássi, innfelldum ísskáp og Miele uppþvottavél, tvöföldum bakaraofni og veglegri eyju með niðurfelldri eldavél og vinnuaðstöðu auk þess sem rúm er fyrir 3-4 til að sitja við eyjuna. Gólfsíðir gluggar og rennihurðir út á verönd sem umlykur húsið á 3 vegu tengja eldhús og útisvæði í eitt flæði. Borðstofa liggur næst eldhúsi og áfram flæðir hún inn í setustofu sem hefur rennihurð út á verönd mót austri.
Rúmgóð og glæsilega innréttuð hjónasvíta er teppalögð með vönduðu ullarteppi, gólfsíðir gluggar snúa út í skógivaxið umhverfi. Innréttingar í fataherberginu eru viðarklæddar í sama stíl og aðrar innréttingar í húsinu, þær ná upp í loft og tryggja góða nýtingu á plássi. Inn af hjónaherberginu er glæsilegt og rúmgott baðherbergi með stórum "walk-in" sturtuklefa, upphengdu salerni, handklæðaofni,viðarklæddri innréttingu, gluggi með opnanlegu fagi og hurð út á verönd þar sem gert er ráð fyrir heitum/köldum potti er á baðherberginu.
Svefnherbergisálma með 3 svefnherbergjum, sjónvarpshol og baðherbergi.
Svefnherbergin eru öll um 10 fm. að stærð með fataskápum. Baðherbergi er með viðarklæddri innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og "walk-in" sturtuklefa. Sjónvarpsstofan er með gólfsíðum gluggum og hurð út á verönd sem snýr mót austri.
Vel innréttað þvottahús þar sem þvottavél og þurrkari geta verið í vinnuhæð og gott skápapláss tengir íverurými hússins við bílskúr og bakdyrainngang.
Bílskúrinn er veglegur, 45,2 fm. að stærð með rafdrifinn bílskúrshurð, flísalagður með innréttingu með góðum skápum og vask og bekkplötu. Gengið er inn bílskúrinn annarsvegar til hliðar við aðalinngang í húsið og hinsvegar á norð-vesturhlið hússins. Inn af bílskúrnum er 6,6 fm. geymsla með opnanlegum glugga.
Húsið er hannað af
Valbirni Ægi Vilhjálmssyni, góð hönnun og vandað efnisval í öllum þáttum hússins skila sér í einstakri eign. Þar má nefna m.a.; Gólfflísar 60*60 cm, viðarklæddar innréttingar, álgluggar með öryggisgleri og sólvarnarfilmu, hljóðdúkur í íverurýmum, KNX hússtjórnarkerfi, Systemair og vandaður frágangur í hverju handverki.
Þetta einstaka hús sameinar glæsileika, hlýleika og uppfyllir þarfir fjölskyldunnar - umhverfið er bæði þéttbýli og sveit með allri þjónustu svo sem sorphirðu, skólaakstri og góðri tengingu við náttúruna með útsýni til allra átta.
Steypt verönd um hverfis húsið á 3 vegu en búið er að leggja vatnslagnir fyrir bæði heitan og kaldan pott á verönd, sem og fyrir sturtu og saunaklefa.
Góð aðkoma er að húsinu, steypt bílastæði með snjóbræðslu rúmar auðveldlega 3-4 bíla fyrir framan húsið.
Á lóðinni er leyfilegt skv. skipulagi hverfisins að byggja allt að 500 fm. og allt að þrjár einingar, t.d. tvö hús sem væru allt að 80 fm. hvort.
Allar frekari upplýsingar um eignina og sýningu annast Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í síma 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.