Landmark fasteignamiðlun og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali kynna: Fallega og vel skipulagða tveggja herbergja 82,4 fm íbúð á 3. hæð ásamt stæði í bílageymslu við Hafnarbraut 11 vestast á Kársnesi í Kópavogi. Útsýni til vesturs. Íbúðin er í útleigu og kemur til greina að yfirtaka leigusam... Sýna meira
Landmark fasteignamiðlun og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali kynna: Fallega og vel skipulagða tveggja herbergja 82,4 fm íbúð á 3. hæð ásamt stæði í bílageymslu við Hafnarbraut 11 vestast á Kársnesi í Kópavogi. Útsýni til vesturs. Íbúðin er í útleigu og kemur til greina að yfirtaka leigusamning. Afhending getur annars orðið fyrir 15. mars 2022. Húsið var byggt upphaflega árið 1988 en hefur verið breytt og stækkað í nokkrum áföngum en árið 2020 var heildar húsið ásamt íbúðum endurnýjað að miklu leyti. Íbúðin er rúmgóð og vel skipulögð, gólfefni, innréttingar, hurðir og tæki eru nýleg, sér þvottahús er innaf baðherbergi ásamt geymslu í kjallara. Glæsilegt útsýni í vestur. Nánari lýsing: Forstofa er með fataskáp og hurð að alrými, harðparket á gólfi. Stofa, borðstofa og eldhús er í sameiginlegu rými og er út frá stofu gengið út á svalir sem snúa í vestur með afar víðfeðmu útsýni. Eldhús er með nýlegri grárri innréttingu, innbyggðri uppþvottvél og innbyggðum ísskáp sem fylgir, bakaraofni, helluborði og gufugleypi yfir.Baðherbergi er með upphengdu salerni með innbyggðum vatnskassa, baðinnréttingu og spegli yfir með baklýsingu, stórri sturtu, flísar á gólfi, í kringum sturtu og á vegg. Þvottahús er inn af baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara og skolvaski, flísar á gólfi. Sér geymsla er í kjallara með áföstum hillum. Sér bílastæði í yfirbyggðri bílageymslu (8) með aðgengi í gegnum bílakjallara að Hafnarbraut 9. Afgirt leiksvæði fyrir börn er í bakhúsi með rólum, rennibraut og grasi. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign. Aðkoma og sameign er snyrtileg með rafdrifnum hurðaopnurum á útidyrum. Lyfta er í húsinu. Birt stærð íbúðar er 71,8 fm (010312) og geymslu 10,6 fm (010024), alls 82,4 fm skv. skráningu Þjóðskrá Íslands. Stæði í bílageymslu (01B08)Fasteignamat 2023 verður 54.450.000 kr. Allar nánari upplýsingar veitir Monika Hjálmtýsdóttir, viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali s: 823-2800, Veiti skuldbindingalaust verðmat á þína eign Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunarFáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA