LIND fasteignasala og Elías Haraldsson löggiltur fasteignasali kynnir til sölu : glæsilegt 148,9 fermetra parhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr (20 fm.). Fallegur suður garður með heitum potti. Eignin hefur verið talsvert endurnýjuð m.a. frá fyrri eiganda. Nýtt járn á þak ca 2008. Endurnýjaðar ofnalagnir ca 2009. Núverandi eigendur kaupa húsið 2011 og hafa gert miklar endurbætur á síðast liðnum árum.
Vatnslagnir- heitt og kalt vatn, hiti lagður í gólf á stofu og eldhúsi, eldhús endurnýjað, sér rafmagnstafla í eldhúsi fyrir span, aðal rafmagnstafla endurnýjuð að hluta, harðparket lagt á öll rými. Árið 2018 var allur garðurinn tekin í gegn og settur heitur pottur, há girðing sem lokar vel garðinum, gluggar og gler í svefnherbergjum suður og bílskúr ásamt hiti lagður í bílskúrsgólf. Árið 2019 er þvottahús endurnýjað með flísum og góðum skápum. Árið 2020 rafmagnstafla í bílskúr (inntak) endurnýjuð að hluta- hleðslustöð 3-fasa.
Árið 2020 var allt baðherbergið tekið í gegn með vönduðum og tímalausum frágangi. Hönnun er eftir Berglindi Berndseni innanhúsarkitekt. Flísar eru frá Ebson og borðplata úr svörtu graníti frá S. Helgason. Sérsmíðaðar innréttingar frá Aðalvík. Sturtugler er dökkgrátt frá Íspan og blöndunartæki eru frá Ísleifur Jónsson. Gólfhiti er í baðherberginu. Um er ræða mjög sjarmerandi parhús með mikilli lofthæð og eru allar ljósabrautir og kastarar frá Lúmex.
Eignin skiptist : forstofu, hol/gangur, þvottahús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, eldhús, borðstofa og stofa.
Nánari lýsing :
Forstofa : flísalögð með góðu fatahengi.
Hol/gangur : parketlagt með innfeldum fataskáp.
Þvottahús : flísalagt með góðum skápum, skolvask og þvottavél og þurkari í vinnuhæð. Góður opnanlegur gluggi.
Baðherbergi : flísalagt með innréttingu við vask, vegghengt salerni, sturta með innbyggðum blöndunartækjum, handklæða ofn og hiti í gólfi. opnanlegur gluggi á baði. sjá lýsingu hér að ofan.
Hjónaherbergi : parketlagt með litlu fataherbergi.
Barnaherbergi l : parketlagt með fataskáp.
Barnaherbergi ll : parketlagt með fataskáp.
Eldhús : parketlagt, með fallegri hvítri innréttingu, mjög öflugt span helluborð og ofn í vinnuhæð. Tvöfaldur ísskápur frá Samsung með ís og klakavél.
Borðstofa : parketlögð, þrjú þrep niður í stofu.
Stofa : parketlögð með útgang út í fallegan suður garð.
Lóð : mjög snyrtileg, hellulögn fyrir framan bílskúr. Fallegur suður bakgarður með hellulagðri verönd og heitum potti.
Hús að utan : lítur vel út.