LANDMARK fasteignamiðlun og Þórey Ólafsdóttir löggiltur fasteignasali, félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 4ra – 5 herbergja íbúð á 1. hæð í litlu fjölbýli við Háaleitisbraut í Reykjavík þar sem stutt í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Íbúðin er á fyrstu h... Sýna meira
LANDMARK fasteignamiðlun og Þórey Ólafsdóttir löggiltur fasteignasali, félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 4ra – 5 herbergja íbúð á 1. hæð í litlu fjölbýli við Háaleitisbraut í Reykjavík þar sem stutt í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Íbúðin er á fyrstu hæð, ekki jarðhæð en þá er gengið upp átta tröppur í íbúðina frá anddyri hússins. Eignin er mikið endurbætt jafnt innan sem utan með stórum suðursvölum. Birt stærð séreignar er 116,5 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er geymsla með 5,6 fm. Lýsing eignar:Forstofa, rúmgóð með stórum nýlegum fataskápum.Stofa og borðstofa í opnu rými með stórum gluggum, útgengt á rúmgóðar suðursvalirEldhús, nýleg eldhúsinnrétting með miklu skápaplássi, góðum tækjaskápum og innbyggðri uppþvottavél sem fylgir. Tveir bakaraofnar í vinnuhæð, efri ofninn er líka örbylguofn og góður borðkrókur.Hjónaherbergi, stórt og rúmgott með nýlegum fataskápum.Barnaherbergi I með nýlegum fataskápum.Barnaherbergi II með nýlegum fataskápum.Baðherbergi nýlega endurbætt, flísalagt með innréttingu, upphengdu salerni og walk-in sturtu. Tengi fyrir þvottavél en líka sameiginlegt þvottahús í kjallara þar sem hver og einn getur verið með sína vél.Geymsla eða geymsluskápur innan íbúðar með hillum.Geymsla (5,6 fm) í kjallara með hillum. Eigninni fylgir hlutdeild í sameign, sameignlegri hjóla- og vagnageymslu og þvottahúsi. Húsgjöld íbúðar eruð kr 26.575 á mánuði en þá er allur almennur rekstur húsfélagsins innifalinn, allur hitakostnaður og rafmagn í sameign sem og einnig framkvæmdasjóður og húseigendatrygging. Íbúðin er töluvert endurbætt að innan og var öll máluð af fagaðila árið 2020. Árið 2019 var skipt um alla fataskápa, innihurðar og gólfefni. Á sama tíma var eldhúsið endurbætt með nýrri innréttingu frá Fríform, nýjum tækjum, nýtt rafmagn dregið í eldhúsið og skipt um alla rofa og tengla í íbúðinni. Árið 2015 var baðherbergið endurbætt og nýtt rafmagn dregið. Húsið sem er steinsteypt íbúðarhús, kjallari og fjórar hæðir hefur verið mikið endurbætt á síðustu árum en nýlega var lokið við viðamiklar utanhússviðgerðir þar sem húsið var múrviðgert og málað að utan, þakviðgert, klætt að hluta, skipt um glugga og svalahaldrið hækkað. Þá var einnig skipt um hurðar á rusla- og hjólageymslu. Skipt var um dren árið 2017 eða 2018 og skipt um teppi og sameignin máluð árið 2015.Frekari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunarFáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA