Falleg og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð við Háaleitisbraut 109 til sölu.
Fjölbýlishúsið Háaleitisbraut 109 – 111 var teiknað af Sigvalda Thordarson og er eitt af síðustu húsunum sem hann hannaði.
Íbúðin er á fjórðu hæð og stigagangurinn er hringlaga, algjör hönnunarperla.
Stofa og borðstofa með útgengi á svalir.
Svefnálma/gangur með þremur svefnherbergjum, baðherbergi og þvottahúsi.
Íbúðin er alls 110,5 fm, þar af er sérgeymsla á jarðhæð 5,5 fm.
Frábær staðsetning, stutt í alla þjónustu, Álftamýrarskóli og tveir leikskólar eru innan hverfis. Einstaklega barnvænt hverfi.
Víkingur er með öflugt íþróttastarf í Safamýri. Verslunarmiðstöðin Miðbær er í næsta nágrenni en þar má finna ísbúð og Mosfellsbakarí.
Skemmtilegur leikvöllur og fótboltavöllur fyrir aftan blokkina. Góðar samgöngur á svæðinu. Kringlan, Skeifan og Laugardalur eru í göngufæri. Nánari lýsing Inngangur, komið er inn í hol með stórum innbyggðum skáp.
Eldhús er með upprunalegri innréttingu sem var hönnuð af Magga Jónssyni sem var fyrsti eigandi íbúðarinnar, þar er stór gluggi og korkur á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými með stórum gluggum og útgengi á stórar svalir svalir sem eru meðfram allri suðurhlið íbúðarinnar.
Parket á gólfi og ljós viðarpanell í lofti. Stórt og bjart rými sem hentar vel til veisluhalda. Útsýni að Perlu úr stofu.
Þrjú svefnherbergi, hjónaherbergi með innbyggðum skáp og sérstöku fataherbergi, tvö barnaherbergi, annað mjög rúmgott.
Plastparket á gólfi. Úr öllum svefnherbergjum er óhindrað útsýni yfir Esju, á veturna sést Friðarsúlan og norðurljósin njóta sín.
Baðherbergi með baðkari með sturtu og upphengdu salerni. Flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús með vaski og máluðu gólfi. Pláss fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla í kjallara sem og tvær hjólageymslur, gengið er inn í aðra úr anddyri blokkarinnar en inn í hina frá garðinum.
Þá er geymsluskápur sem íbúðin á staðsettur rétt fyrir innan inngang blokkarinnar.
Baðherbergi var allt endurnýjað árið 2020 og plastparket sett á öll svefnherbergin.
Skipt var um glugga árið 2020. Þá voru allir gluggar í svefnherbergjum endurnýjaðir ásamt eldhúsglugga. Sama ár var norðurhlið hússins einnig máluð.
Árið 2025 var framkvæmd múrviðgerð á austurhlið hússins, klæðning tekin af og málað í Sigvaldalitum. Blokkin hefur almennt fengið viðhald eftir þörfum.
Virkt húsfélag er í húsinu og undanfarin ár hefur verið hafður sá háttur á að húsfélagið safni fyrir framkvæmdum áður en farið er í þær.
Mjög góð og vinsæl staðsetning í Háaleitishverfi, stutt í allar áttir.
Allar frekari upplýsingar veitir Sigríður Jónasdóttir löggiltur fasteignasali í síma 661-4141, eða gegnum tölvupóstfangið sigridur@bjarturfasteign.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0,8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: Af kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv., kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.