Gullsmári 2, 201 Kópavogi er virkilega falleg, björt og vel skipulögð fimm herbergja 105,4 fm íbúð á fyrstu hæð í 3 hæða fjölbýli í Smárahverfinu í Kópavogi. Eignin samanstendur af anddyri, holi, eldhúsi, fjórum svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi og 5,2 fm geymslu í sameign. Þar er einnig sam... Sýna meira
Gullsmári 2, 201 Kópavogi er virkilega falleg, björt og vel skipulögð fimm herbergja 105,4 fm íbúð á fyrstu hæð í 3 hæða fjölbýli í Smárahverfinu í Kópavogi. Eignin samanstendur af anddyri, holi, eldhúsi, fjórum svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi og 5,2 fm geymslu í sameign. Þar er einnig sameiginleg hjólageymsla. Góð Verönd er beint út frá stofu, yfirbyggð að hluta.Eignin er skráð skv. HMS alls 105,4 fm, þar af er geymsla 5,2 fm Fasteignamat 2024 er kr. 70.900.000Nánari lýsing:Anddyri: Frá sameign er gengið inn í forstofu með góðum fataskápum. Parket á gólfi.Hol: Rúmgott hol þaðan sem gengið er inn í íbúðina.Eldhús: Falleg nýleg innrétting á tveimur veggjum. Gott skápapláss. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Ofn í vinnuhæð. Parket á gólfi.Stofa / borðstofa: Er samliggjandi stór og björt með útgengi á góða verönd. Parket á gólfi.Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með fataskápum. Parket á gólfi.Svefnherbergi I: Gott herbergi með fataskáp. Parket á gólfi.Svefnherbergi II: Gott herbergi með fataskáp. Parket á gólfi.Svefnherbergi III: Gott herbergi með fataskáp. Parket á gólfi.Baðherbergi: Glæsilegt, Nýlega endurnýjað, viðarinnrétting, walk in sturta, innbyggð blöndunartæki, handklæðaofn, upphengt salerni. Flísar í hólf og gólf.Þottahús: Gott þvottahús þar sem gert er ráð fyrir bæði þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Skolvaskur. Flísar á gólfi.Sameignileg hjóla og vagnageymsla er í sameign. Virkilega Falleg eign á eftirstóttum stað þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, verslanir og þjónustu.Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Procura fasteignasölu á netfang eða í síma 497 7700Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum og hvetjum við væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Opinber gjöld við kaup: Kostnaður kaupanda vegna kaupa á þessari eign er stimpilgjald kaupsamnings, 0,4% af fasteignamati fyrir fyrstu kaupendur, 0,8% fyrir aðra einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjöld eru 2.700 kr. fyrir hvert skjal. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.