LIND fasteignasala og Ragnar Þorsteinsson, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu Gullengi 5, fallega, bjarta og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á þriðju hæð með sérinngangi og rúmgóðum svölum til suðurs og austurs. Birt stærð eignarinnar er 142,6m2, þar af 22m2 bílskúr. Í sameign er hjóla- og... Sýna meira
LIND fasteignasala og Ragnar Þorsteinsson, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu Gullengi 5, fallega, bjarta og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á þriðju hæð með sérinngangi og rúmgóðum svölum til suðurs og austurs. Birt stærð eignarinnar er 142,6m2, þar af 22m2 bílskúr. Í sameign er hjóla- og vagnageymsla ásamt ásamt opnum geymslurekkum íbúa. Einnig er geymsla innan íbúðar. Gullengi 5 er í fjölskylduvænu og rólegu hverfi, steinsnar frá verslun og þjónustu í Spönginni, auk þess sem stutt er í skóla og útivist. Húsinu hefur verið vel við haldið undanfarin ár og verður málað að utan sumarið 2024. Nánari lýsing: Úr anddyri er gengið upp fallegar tröppur að íbúðarhæðinni sjálfri. Þar er komið inn í rúmgott hol, með miklu og góðu skápaplássi, þremur svefnherbergjum, þvottahúsi með opnanlegum glugga, baðherbergi með baðkari, sturtuklefa og opnanlegum glugga. Gott skápapláss er í öllum herbergjum. Stofa, eldhús og borðstofa eru í opnu rými. Úr rýminu er útgengt á tveim stöðum á rúmgóðar suður og austursvalir. Geymsla er innaf eldhúsi. Parket er á gólfum, en flísar á votrýmum. Allt efnisval eignarinnar er vandað og vel umgengið. Sérsmíðuð hvít og mahóní innrétting í eldhúsi með góðu borðplássi, keramikhelluborði og ofni í vinnuhæð.Eignin hefur fengið gott viðhald á síðustu árum og verður máluð að utan sumarið 2024. Bílskúr er með millilofti, sjálfvirkum hurðaopnara, upphitaður og með vatni.// VILDARKORT LINDAR //Kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar, sem veitir 30% afslátt hjá samstarfsaðilum okkar:Parki, Z-brautir og gluggatjöld, S. Helgason steinsmiðja, Húsasmiðjan, Húsgagnahöllin, Dorma, Betra Bak, Vídd og Flugger litir.Allar nánari upplýsingar veitir:RAGNAR ÞORSTEINSSON, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI | S. 897-3412 | Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.-----------------------------------------------------------------------Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.