Betri Stofan Fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lögg. fasteignasali kynna:
Glæsileg 227,3 fm efri sérhæð og ris ásamt bílskúr í húsinu við Grenimel 7 í Vesturbænum. Hæðin skiptist í forstofu, þvottahús, stigahús, stigapall, stofu með útgengi á svalir til suðurs, eldhús/borðstofa, arinstofa, svefnherbergisgangur, 2-3 svefnherbergi, þar af eitt með útgengi á suðursvalir og baðherbergi. Fallegir franskir gluggar og skrautlistar í loftum. Í risi er rúmgóð stofa/eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og geymsla/fataherbergi.
Mjög fallegur garður til suðvesturs, stór grasflötur og 30 fm pallur. Frábær staðsetning, örstutt í leikskóla, skóla, sundlaug, verslanir, kaffihús og fl.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á undanförnum árum sbr. upptalningu hér að neðan:2017: Skólplagnir í kjallara og út í götu endurnýjaðar, húsið drenað allan hringinn, bílastæði við bílskúr hellulögð og hitalögn komið fyrir undir.
2018: Allir fletir nema baðherbergi og stigahús parketlagðir með niðurlímdu plankaparketi frá Birgisson, gólfhiti settur á stærstan hluta íbúðar, gólfplata jöfnuð.
2019: Þvottahúsi komið fyrir í andyrisherbergi aðalhæðar, nýjar vatnslagnir og rafmagn dregnar, innréttingu komið upp
2020: Garður endurnýjaður, 30 fm pallur og skjólveggur úr lerki byggður út frá bílskúr
2022: Baðherbergi á aðalhæð endurnýjað að fullu og rými stækkað inn í annað herbergi. Vola blöndunartæki, Porcalanosa flísar og grænn marmari. Allar lagnir endurnýjaðar innan rýmis. Gluggar málaðir að utan, útitröppur endurnýjaðar.
2023: Nýtt rafmagn dregið inn í bílskúr, þriggja fasa rafmagnshleðslustöð komið fyrir utan á bílskúr.
2024: Litlu barnaherbergi breytt í fataherbergi, skápar í svefnherbergi endurnýjaðir.
Nánari lýsing:Sérinngangur - kókosteppi á gólfi. Stór síður franskur gluggi til austurs.
Forstofuhol - þaðan gengið inn í þvottahús með góðum hirslum fyrir útiflíkur ofl. Rennihurð til að loka af þvottahúsið. Frá forstofu er einnig stigi upp á rishæð.
Eldhús og borðstofa - opnu rými, c.a. 30 fm. Endurnýjuð eldhúsinnrétting frá Axis, með miklu skápa- og borðplássi. Stór franskur gluggi í enda borðstofunnar. Sérsmíðaðar hillur þekja heilan vegg.
Stofa - rúmgóð með stórum glæsilegum gólfsíðum glugga til suðurs. Þaðan er útgengi út á suðursvalir.
Arinstofa - Vinnuherbergi/sjónvarpsherbergi - fallegt eldstæði. Fulningaklæðningu á vegg.
Svefnherbergisgangur -
2-3 rúmgóð svefnherbergi - útgengi á svalir úr einu þeirra. Í einu herbergjanna hefur verið útbúið fataherbergi.
Baðherbergi - endurnýjað á vandaðan og smekklegan hátt með glugga, flísalagt í hólf og gólf, sturta, upphengt wc. Blöndunartæki frá Vola og marmari á baðherbergisinnréttingu.
Risíbúð/rými :2 svefnherbergi.Stofa og eldhús. Baðherbergi með flísalögðu gólfi. Upphengt wc og baðkar með sturtutækjum. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
2 geymslur undir súð.
Bílskúr skráður 23,5 fm með hita og rafmagni. Vaskur er í bílskúr og þak hefur verið endurnýjað.
Sameiginlegur garður með stórum grasfleti og 30fm palli. Einkar skjólgóður og fallegur garður. Settir hafa verið upp matjurtargarðar.Flott eign í rólegu umhverfi í hjarta Vesturbæjar, nærri skólum, verslunum og annarri þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lögg. fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.