Domusnova kynnir fallega og bjarta 89,6 fm íbúð á efstu hæð í hjarta vesturbæjar Reykjavíkur. Fallegt útstýni út á sjó til suðurs og vesturs.Íbúðin, sem er á tveimur hæðum, skiptist í forstofu / hol, eldhús, stofu / borðstofu, þvottahús, geymslu, svefnherbergi og risherbergi. Mikil lofhæð í stofu og... Sýna meira
Domusnova kynnir fallega og bjarta 89,6 fm íbúð á efstu hæð í hjarta vesturbæjar Reykjavíkur. Fallegt útstýni út á sjó til suðurs og vesturs.Íbúðin, sem er á tveimur hæðum, skiptist í forstofu / hol, eldhús, stofu / borðstofu, þvottahús, geymslu, svefnherbergi og risherbergi. Mikil lofhæð í stofu og bjartir gluggar sem gera íbúðina mjög skemmtilega.Húsið virðist líta vel út að utan en það var múrviðgert og málað fyrir nokkrum árum.Þetta er falleg íbúð á góðum stað þar sem stutt er alla þjónustu og afþreyingu.Nánari lýsing:Forstofa / hol: forstofa með fataskáp og parketi á gólfi. Eldhús: fallegt eldhús með hvítri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og parketi á gólfi.Þvottahús: þvottahúsið er innan íbúðar inn af eldhúsi.Stofa / borðstofa: samliggjandi stofa og borðstofa með mikilli lofthæð og fallegu útsýni til suðurs og vesturs, sést til Keilis, suðurnesja og út á sjó. Úr stofu er úgengi á suður vestur svalir. Baðherbergi: baðherbergið með hvítri innréttingu, baðkari með sturtu í, upphengdu salerni og flísum á gólfi og veggjum. Svefnherbergi: Svefnherbergið er með fataskápum og rými undir súð, góðri lofthæð og parketi á gólfi. Rishæð: Úr holinu er gengið upp á rishæðina. Þar er gott rými undir súð með þakglugga og parketi á gólfi sem er í dag nýtt sem skrifstofa / sjónvarpsherbergi. Það er mögulegt að loka þessu rýni og fá þannig annað svefnherbergi í íbúðina. Gólflötur rýmisins er um 11,5 fm.Geymsla: Lítl geymsla er innan íbúðar innaf holi.Sameign: Snyrtileg teppalögð sameign. Í stigaganginum eru 8 íbúðir. Nánari upplýsingar veita:Snorri Björn Sturluson löggiltur fasteignasali / lögmaður í símas 699 4407 eða á netfangið Skrifstofa Domusnova fasteignassölu í síma 527-1717 eða á netfangið Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.