Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega, bjarta, vel skipulagða og þó nokkuð endurnýjaða 88,6 fermetra 3ja herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) með suðursvölum í litlu og góðu fjölbýlishúsi á eftirsóttum stað í Vesturbænum.- Nýtt ljóst Karhs eikarparket er á gólfum íbúðarinnar og nýjir gólflistar.
- Íbúðin er öll nýmáluð að innan
- Húsið að utan er nýlega múrviðgert Lýsing eignar:Forstofa / hol, parketlagt og með fataskápum.
Eldhús, parketlagt og bjart með borðaðstöðu. Fallegar hvítar uppgerðar innréttingar með nýjum vaski, uppþvottavél og nýjum ísskáp.
Stofa, parketlögð, björt og rúmgóð með útgengi á suðursvalir og útsýni til sjávar og að Reykjanesi.
Gangur, parketlagður.
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir að hluta, nýr vaskskápur og baðkar með sturtuaðstöðu.
Þvottaherbergi, lakkað gólf.
Hjónaherbergi, parketlagt og rúmgott með fataskápum.
Barnaherbergi, parketlagt og með fataskáp.
Geymsla, lakkað gólf og hillur.
Á jarðhæð hússins eru:Sameiginleg hjólageymsla, með útgengi á framlóð.
Húsið að utan er nýlega múrviðgert og lítur vel út.
Lóðin er fullfrágengin, aðkoma góð og næg bílastæði á malbikuðu bílaplani framan við húsið.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum stað í Vesturbænum þaðan sem stutt er í H.Í., barnaskóla, gagnfræðaskóla, Sundlaug Vesturbæjar, Melabúðina, Kaffi Vest o.fl.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is