Fasteignasalan TORG kynnir: Sérlega rúmgóða og fallega 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð í þessu vandaða fjölbýlishúsi á besta stað í Vesturbænum. Eignin er skráð samkvæmt fasteignamati ríkisins 111.8 fm, íbúðin er 104,7 fm og geymslan skráð 7.1 fm. Íbúðin skiptist í 3 rúmgóð svefnherbergi, eldhús, st... Sýna meira
Fasteignasalan TORG kynnir: Sérlega rúmgóða og fallega 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð í þessu vandaða fjölbýlishúsi á besta stað í Vesturbænum. Eignin er skráð samkvæmt fasteignamati ríkisins 111.8 fm, íbúðin er 104,7 fm og geymslan skráð 7.1 fm. Íbúðin skiptist í 3 rúmgóð svefnherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, baðherbergi, geymslu og þvottahús. Gengið er frá stofu út á rúmgóðar 15,6 suðvestursvalir. Stutt er í grunn- og leikskóla og ýmsa alhliða þjónustu. Allar nánari upplýsingar veitir Þorgeir, lögg.fasteignasali í síma 696-6580 eða eða Rebekka í síma 7768624 eða Nánari lýsing: Forstofa: Komið er inn í forstofu og hol með góðum fataskáp, granít flísar á gólfi. Eldhús: Er rúmgott með fallegri hvítri innréttingu með áföstu eldhúsborði, steinn á borðum, innbyggð uppþvottavél, parket á gólfi. Þvottahús: Með nýlegri innréttingu, flísar á gólfi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Stofa: Er björt og rúmgóð, parket á gólfi, útgengi út á stórar 15,6 fm suðvestur svalir. Hjónaherbergi: Er rúmgott með stórum fataskápum, parket á gólfi. Barnaherbergin: Tvö svefnherbergi með góðum fataskápum en búið að opna að hluta á milli þeirra, auðvelt að breyta aftur í tvö svefnherbergi, parket á gólfum. Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, sérsmíðaðar innréttingar úr kirsuberjavið með granít stein á borði og innfelldum vaski, baðkar með sturtuaðstöðu. Húsið/Íbúðin: Húsið var viðgert og málað að utan 2017, öll íbúðin var máluð og gluggar hvítlakkaðir 2018. Niðurlag: Sérlega skemmtileg íbúð á þessum vinsæla stað, nærri miðbænum og KR-vellinum, Grandinn í göngufæri með fjölda veitingastaða og stutt í útivist á Nesinu. Vönduð, björt og glæsileg íbúð, smekklega innréttuð af eigendum. Allar nánari upplýsingar veitir Þorgeir, lögg.fasteignasali í síma 696-6580 eða eða Rebekka í síma 7768624 eða Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila, en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá. Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Fletta í fasteignalista