Eignamiðlun kynnir:Vel staðsett 67,3 fermetra tveggja herbergja íbúð á jarðhæð með verönd útfrá stofu, skammt frá Melabðúinni og KR-vellinum. Íbúðin er vel hönnuð, björt og vistleg með rúmgóðri stofu og eldhúsi. Þvottahús og geymsla í einu rými innan íbúðar. Nýtt parket á gólfum, hús í góðu viðhaldi... Sýna meira
Eignamiðlun kynnir:Vel staðsett 67,3 fermetra tveggja herbergja íbúð á jarðhæð með verönd útfrá stofu, skammt frá Melabðúinni og KR-vellinum. Íbúðin er vel hönnuð, björt og vistleg með rúmgóðri stofu og eldhúsi. Þvottahús og geymsla í einu rými innan íbúðar. Nýtt parket á gólfum, hús í góðu viðhaldi.Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða sem einnig sýnir eignina. Til að undirbúa kauptilboð þá er skynsamlegt að fá söluverðmat á þinni eign, þér að kostnaðarlausu. Hringið og ræðið málið í síma 663-2508.Komið er inn í teppalagðan vel um genginn stigagang. Aðkoma er auðveld og ekki upp tröppur að fara til að komast að íbúðinni.Þegar gengið er inn í íbúðina er komið í flísalagt forstofurými sem er opið til stofunnar til vinstri. Til hægri í forstofu er gengið í þvottahús og geymslu íbúðarinnar, beint framundan er rúmgóður fataskápur. Góð birta kemur inn um stóra suðurglugga í stofu. Þegar gengið er úr forstofu í stofu er baðherbergi til vinstri, svefnherbergi til hægri. Baðherbergið er með upprunalegum mósaíkflísum á veggjum, baðkari með sturtuaðstöðu, lítilli innréttingu og flísum á gólfi. Svefnherbergi er rúmgott og bjart, með stórum fataskáp á heilum vegg og útbyggðum glugga sem gefur mikla birtu og skapar gott rými.Bæði stofa og eldhús eru óvanalega rúmgóð rými fyrir tveggja herbergja íbúð. Stofan er stór og björt með stórum gluggum til suðurs og minni glugga til vesturs í hliðarskoti úr stofunni. Gengið er út um svaladyr úr stofu út á hellulagða verönd sem afmarkast af háum runnum og skjólvegg.Eldhús er til vinstri þegar gengið er í stofu. Í eldhúsi er rúmgóð hvít innrétting með beikiköntum, flísum á milli skápa, glugga til suðurs og plássi fyrir lítið eldhúsborð. Uppþvottavél fylgir eigninni. Rúmgott rými sem nýtist mjög vel. Fallegt nýtt eikarparket er á öllum meginrýmum eignarinnar, stofu, eldhúsi og herbergi. Flísar á baði, forstofu og þvottahúsi/geymslu.Sameiginleg hjólageymsla er í húsinu, sem gengið er í utanfrá. Húsið er í góðu ástandi að því er séð verður og virðist hafa fengið gott viðhald að utan.Áhugaverð eign, afar vel nýtt, björt og falleg og frábærlega staðsett.Kostnaður kaupanda af kaupum:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.500 af hverju skjali.4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegi 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.isÁbyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. Eignamiðlun Grensásvegi 11 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögumHeimasíða EignamiðlunarEignamiðlun á Facebook