KRISTÍN EINARS. lgf. og DOMUSNOVA KYNNA:NOTALEGA OG VEL SKIPULAGÐA 4 HERBERGJA ÍBÚÐ MEÐ SÉRINNGANGI Á JARÐHÆÐ Í EFTIRSÓTTU HVERFI Á SELTJARNARNESI.ÍBÚÐIN ER MEÐ 3 SVEFNHERBERGJUM, STOFU OG BORÐSTOFU Í OPNU RÝMI, ÞVOTTAHERBERGI OG GEYMSLA INNAN ÍBÚÐAR.BÍLSKÚR FYLGIR EIGNINNI.SAMKV. FMR er íbúðin skrá... Sýna meira
KRISTÍN EINARS. lgf. og DOMUSNOVA KYNNA:NOTALEGA OG VEL SKIPULAGÐA 4 HERBERGJA ÍBÚÐ MEÐ SÉRINNGANGI Á JARÐHÆÐ Í EFTIRSÓTTU HVERFI Á SELTJARNARNESI.ÍBÚÐIN ER MEÐ 3 SVEFNHERBERGJUM, STOFU OG BORÐSTOFU Í OPNU RÝMI, ÞVOTTAHERBERGI OG GEYMSLA INNAN ÍBÚÐAR.BÍLSKÚR FYLGIR EIGNINNI.SAMKV. FMR er íbúðin skráð 111,4 fm og bílskúr 23,9 fm, samtals 135,3 fm.Fyrirhugað fasteignamat 2024 kr. 98.050.000* Skipt var um neysluvatnslagnir 2021.SELJENDUR ERU AÐ LEITA AÐ EINBÝLIS- EÐA RAÐHÚSI Á AUSTANVERÐU SELTJARNARNESI Í SKIPTUM FYRIR EIGNINA.Nánari lýsing: Forstofa með fataskápum og flísum á gólfi.Opið og rúmgott stofurými með parketi á, garð þaðan er útgengt út á stétt sem er sérafnotareitur. Garðurinn þar fyrir framan er inn í sameign.Eldhús með L- laga eikarinnréttingu, flísar á milli innréttinga og á gólfi. Rúmgóður borðkrókur með tveimur gluggum.Hjónaherbergi með fataskápum úr eik og parketi á gólfi.Tvö herbergi bæði með parketi á gólfum og annað með fataskáp.Baðherbergi með baðkari og sturtuklefameð glerlokun, góð innrétting. Flísarlagt í hólf og gólf.Þvottaherbergi með flísum á gólfi.Geymsla er innan íbúðar. Bílskúrinn stendur í bílskúrslengju gengt húsinu, heitt og kalt vatn er í skúrnum. Húsið var byggt árið 1996 og bílskúrar 1998. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í húsinu.Hér er um að ræða fallega og vel skipulagða eign á mjög rólegum og góðum stað á Nesinu. Nánari upplýsingar veitir:Kristín Einarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.894 3003 / Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu: Nýtt - Eignin er nýbygging. Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður. Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti. Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti. Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.