STOFN Fasteignasala og Benedikt Ólafsson Lgf. kynna: Mjög fallega, bjarta og rúmgóða 195,4 fm. efri hæð með sér inngangi. Íbúðin er hæð og ris, 7 herbergja með 5 góðum svefnherb. Eignin er í viðhaldslitlu og vönduðu fjórbýli í litlum botnlanga að Glitvöllum 3, 221 Hafnarfirði. Einstaklega góð eign f... Sýna meira
STOFN Fasteignasala og Benedikt Ólafsson Lgf. kynna: Mjög fallega, bjarta og rúmgóða 195,4 fm. efri hæð með sér inngangi. Íbúðin er hæð og ris, 7 herbergja með 5 góðum svefnherb. Eignin er í viðhaldslitlu og vönduðu fjórbýli í litlum botnlanga að Glitvöllum 3, 221 Hafnarfirði. Einstaklega góð eign fyrir stóra fjölskyldu, vel skipulögð, öll herbergin mjög rúmgóð. Stórar 19,3 fm. svalir sem snúa til suðurs. Auðvelt er að loka svölunum. Eignin er skráð hjá FMR 195,4 fm.Ath. Sirka 10-15 ferm. óskráðir hjá FMR. á efri hæð undir súð með gott notagildi, samtals með óskráðum ferm. ca. 210 fm.Nánari upplýsingar veitir Benedikt Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala í síma 661 7788, tölvupóstur Nánari lýsing:Neðri hæð:Inngangur: Fyrir framan útidyrahurð er vönduð lítil og snyrtileg upphituð geymsla fyrir hjól ofl. Geymslan er klædd með hvítri klæðningu og fellur því vel við húsið. Hiti í gagnstétt, tröppum og á pallinum fyrir framan útidyrahurð.Forstofa: Mjög rúmgóður fataskápur, ljósar flísar á gólfi.Sjónvarpshol: Gott hol sem er undir stiganum með ágætis sjónvarpsrými, á teikningu er gert ráð fyrir þvottahúsi.Eldhúsið: Er bjart og opið við stofu og með fallegri hvítri innréttingu, stór eyja sem hægt er að sitja við og granítborðplötum á borðum, góð vinnuaðstaða, flísar á gólfi. Frá eldhúsi er útgegnt á stórar og góðar svalir ( auðvelt að setja svalalokanir).Stofa/borðstofa:er opið rými sem tengist við eldhúsið sem gerir rýmið allt mjög opið og bjart, flísar á gólfi og útgengi á svalir til suðurs.Baðherbergi: Er með gluggum, fallega innréttingu með tveimur handlaugum, sturtu, stórt baðkar, vönduð innbyggð blöndunartæki, handklæðaofn, upphengt salerni. Flísalagt Gólf og veggir.Hjónaherbergi: Er rúmgott með góðum fataskápum, parket á gólfi.Forstofuherbergi: Gluggar í tvær áttir, með fataskápur og parket á gólfi.Geymsla: Við forstofuna á hægri hðnd er ágætis geymsla/ inngangur fyrir útigallann flísar á gólfi, einnig með sérinngang við hliðina á útidyrahurðinni.Efri hæð:Stigi: Gengið upp steyptan teppalagðan stiga.Tvö Svefnherbergi: Eru einstaklega rúmgóð, parket á gólfi.Þriðja herbergið: Ágætis herbergi (á teikningu er gert ráð fyrir að þar sé hjónaherbergi með fata herbergi innaf) með Velux glugga, parket á gólfi. Sjónvarpshol: Mjög gott sjónvarpsrými með þremur Velux þakgluggum sem gerir rýmið mjög bjart, möguleiki á að bæta við svefnherbergi.Baðherbergi: Fallegt baðherbergi, með snyrtilega innréttingu, góða sturtu, vönduðum innbyggðum blöndunartækjum. Flísar á gólfi og stórum hluta veggja.t Velux gluggi.Þvottahús: Ágætis þvottahús með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og auka hirlslum. Undir súð er geymslurými meðfram útvegg. Velux gluggi.Um er að ræða vel skipulaga og fallega innréttaða íbúð í fjórbýli á rólegum stað í Vallahverfinu í Hafnarfirði. Mjög stutt er í grunn og leikskóla, engin gata börnin þurfa að ganga yfir. Stutt í alla þjónustu, matvöruverslanir, apótek, líkamsræktarstöðvar, sundlaug ofl. Upplýsingar gefur Benedikt Ólafsson Lgf. sími: 661 7788 eða sendu á Netfangið: Við höfum Heilindi - Dugnaður - Árangur að leiðarljósi."Ef það er eitthvað sem ég get gert fyrir þig / ykkur í sambandi við kaup eða sölu á fasteign þá er heiður fyrir okkur að vera ykkur innan handar."Ert að selja? Ég býð þér / ykkur frítt verðmat.STOFN Fasteignasala ehf.Suðurlandsbraut 10,108 Reykjavík Sími: 511-0900 Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.