Falleg fjögurra herbergja enda íbúð á þriðju og efstu hæð í góðu fjölbýli, gluggar á þrjá vegu. Sérinngangur er í íbúðina frá opnu stigahúsi. Stórfenglegt útsýni er frá íbúðinnni þar sem horft er óskert yfir sundin, Esjuna og Úlfarsfell. Árið 2023 var mikið endurnýjað í íbúðinni, skipt var um parket, innihurðar, baðherbergi var allt tekið í gegn og engu til sparað þar, einnig var þvottahús tekið í gegn og íbúðin máluð. Tvennar svalir, út frá stofu og út frá hjónaherbergi. Næg bílastæði eru á lóð og þar eru tvær hleðslustöðvar.
Forstofa með flísum og skápum.
Hol með parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa með parketi, stórkostlegt útsýni frá stofu.
Eldhús með flísum á gólfi, borðkrókur. Opið inn til eldhúss á tvo vegu. Fallegt og mikið útsýni frá eldhúsi. Helluborð og ofn nýtt frá janúar 2026.
Þvottahús var allt tekið í gegn árið 2023, nýjar innréttingar, flísar á gólfi.
Herbergi með parketi.
Hjónaherbergi með parketi og skápum, útgengið út á svalir.
Baðherbergi var allt endurnýjað árið 2023, flísar í hólf og gólf, baðkar og sturta, falleg innrétting og steinn á borði. allt efnisval í háum gæðaflokkum.
Herbergi með parketi og skápum.
Geymsla í sameign er 6,7 fm.
Allar nánari upplýsingar veitir Kristján þórir Hauksson lögg. fasteignasali í síma 696-1122 eða á netfanginu kristjan@fastlind.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.