Íbúð
Einbýlishús á tveimur hæðum í Kópavogi. Aukaíbúð með sérinngangi á jarðhæð. Húsið er rúmgott með breyttu skipulagi.
Stofa
Stofa og borðstofa opin og björt með aukinni lofhæð. Útgengi á svalir sem snúa til suðurs.
Eldhús
Eldhús í aðalíbúð: Eikarinnrétting, góður borðkrókur, flísar á gólfi. Eldhús í aukaíbúð: Nýleg rúmgóð innrétting, flísar á milli efri og neðri skápa, tengi fyrir uppvottavél, gluggar á tvo vegu, harðparket á gólfi.
Svefnherbergi
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskáp, harðparket á gólfi. Barnaherbergi: Harðparket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi
Baðherbergi í aðalíbúð: Flísalagt í hólf og gólf, rúmgóð innrétting, sturta, hornbaðkar. Baðherbergi í aukaíbúð: Flisalagt gólf og veggir að hluta, innrétting undir vaski, sturta, gluggar með opnanlegu fagi.
Þvottahús
Þvottahús inn af eldhúsi í aðalíbúð, útgengt á lóð fyrir aftan hús. Í aukaíbúð, tengi fyrir þvottavél og þurrkara í forstofu.
Geymsla
Rúmgóður skápur í forstofu aukaíbúðar, fataskápar í herbergjum og aðrir geymslur.
Bílskúr
Bílskúr 43,9 fm2 með góðri lofthæð, rafdrifin hurð, gönghurð, stórir gluggar, hellulögð innkeyrsla með hitalögn, pláss fyrir 3 bíla.
Garður
Fallega gróin lóð með hellulögn fyrir framan innganga, hellulögð stétt að hluta meðfram húsi, rúmgóður tyrfður garður.
Svalir/þak
Mjög rúmgóðar svalir (um 20 fm) ofan á bílskúr, snúa til suðurs, fallegt útsýni yfir Kópavogsdalinn.
Önnur herbergi
Andyri á neðri hæð, flísalagt gólf, góður fataskápur. Fallegur bogadregin stigi með teppi á þrepum liggur upp á efri hæðina.
Tæki
Tengi fyrir uppvottavél í eldhúsi aukaíbúðar, tengi fyrir þvottavél og þurrkara í forstofu aukaíbúðar.